Fiđrildavika UNIFEM - Fréttir
5.9.2011
Fiđrildavika UNIFEM
UN Women á Íslandi stendur fyrir fjáröflunarviku 12. – 18. september með það að markmiði að hvetja Íslendinga til að standa
með „systrum“ sínum víða um heim.
Þetta er í annað sinn sem UN Women stendur fyrir fjáröflunarátaki en árið 2008 var haldin ógleymanleg Fiðrildavika þar sem að söfnuðust um hundrað milljónir.
Þema fjáröflunarvikunnar í ár verður einnig fiðrildið; þar sem ætlunin er að hafa fiðrildaáhrif héðan frá Íslandi því eitthvað lítið, eins og vængjasláttur fiðrilda, getur haft gríðarleg áhrif annars staðar í heiminum.
Með því að vera þátttakandi í Systralagi UN Women, stendur þú með „systrum“ þínum víðsvegar um heim og eflir þær í viðleitni sinni til að skapa sér, börnum sínum og þar með samfélaginu öllu betri framtíð. Með mánaðarlegum styrkjum í Systralagið getur þú tekið þátt í því að veita konum byr undir báða vængi.
Framlög til Systralagsins renna til UN Women sem er eina stofnun Sameinuðu þjóðanna sem berst eingöngu fyrir bættum hag kvenna í fátækustu ríkjum heims.
Saman getum við haft fiðrildaáhrif!
Fiðrildaáhrif UN Women
Fiðrildið hefur tilvísun í alþjóðlega baráttu gegn kynbundnu ofbeldi og hefur í gegnum aldirnar verið álitið táknmynd fyrir umbreytingar í lífi fólks í átt til frelsis. Fiðrildaáhrifin (e. butterfly effect) vísa í þá kenningu að vængjasláttur örsmárra fiðrilda í einum heimshluta geti haft áhrif á stór veðurkerfi hinum megin á hnettinum.
Það má svo sannarlega heimfæra kenninguna um fiðrildaáhrifin á fjáröflun UN Women á Íslandi. Með því að leggja UN Women lið gefst tækifæri til að hafa jákvæð áhrif á líf kvenna í þróunarlöndum og á stríðshrjáðum svæðum. Markmið UN Women er að gefa konum byr undir báða vængi. Við erum öll hluti af alþjóðasamfélaginu. Því betri sem aðstæður og kjör okkar eru, því betur erum við í stakk búin til að láta gott af okkur leiða og vera virkir þátttakendur í að bæta hag annarra í heiminum.
Saga Mirabal-systranna
Þann 25. nóvember 1960 lét Trujillo, einræðisherra Dóminíska lýðveldisins, myrða á hrottalegan hátt þrjár systur; Minervu, Mate og Patriu Mirabal. Þær börðust fyrir mannréttindum og lýðræði og voru kallaðar fiðrildin. Morðin á systrunum var dropinn sem fyllti mælinn hjá almenningi því sex mánuðum síðar lauk 32 ára tímabili ógnarstjórnar í landinu þegar Trujillo var ráðinn af dögum. Árið 1981 ákváðu kvennasamtök í Suður Ameríku að gera 25. nóvember að baráttudegi gegn kynbundnu ofbeldi til að heiðra minningu Mirabal-systranna. Kvennasamtök um allan heim hafa upp frá því haldið uppi merkjum fiðrildanna og það var árið 1999 að Sameinuðu þjóðirnar lýstu daginn alþjóðlegan baráttudag gegn kynbundnu ofbeldi.
Hægt er að skrá sig á heimasíðu UNIFEM www.unifem.is








