Beint á leiđarkerfi vefsins
Atvinnumál kvenna

Máttur kvenna á Bifröst - Fréttir

12.9.2011

Máttur kvenna á Bifröst

Háskólinn á Bifröst býður upp á rekstrarnám í fjarnámi fyrir konur sem hafa áhuga á að bæta rekstrarþekkingu sína. Máttur kvenna er 11 vikna námskeið sem hefst með vinnuhelgi á Bifröst. Kennsla fer svo fram í fjarnámi og geta þátttakendur hlustað á fyrirlestra á netinu og unnið verkefni hvenær sem þeim hentar. Náminu lýkur með  vinnuhelgi og formlegri útskrift.

Engar sérstakar forkröfur eru gerðar varðandi fyrra nám. Þátttökugjald er 95.000 kr.

Innifalið í verðinu eru öll námsgögn og 2 vinnuhelgar með gistingu og fæði.  

Næsta námskeið hefst með vinnuhelgi á Bifröst 16.-17. september 2011. Skráning fer fram á heimasíðu skólans www.bifrost.is.

Námsgreinar í Mætti kvenna

Markmið  

  • Efla tengslanet kvenna
  • Auka hæfni kvenna í atvinnurekstri
  • Auka arðsemi fyrirtækja
  • Efla atvinnulíf á landsbyggðinni á þeim sviðum sem líklegust eru til að stuðla að vexti og uppbyggingu
  • Skapa fleiri störf
  • Snúa vörn í sókn

 Kennslukerfi Háskólans á Bifröst

Fjarnám á Bifröst byggir á kennslukerfi sem heitir MySchool. Það er hægt að nálgast hvar sem er í gegnum Internetið. Í MySchool á hvert námskeið sitt svæði þar sem  fyrirlestar frá kennurum og glærur eru aðgengilegar. Verkefnaskil og endurgjöf frá kennurum fara einnig fram í gegnum kennslukerfið. Nemendur geta með þessum hætti haft vinnu sína á einum stað, yfirfarna með athugasemdum. Á fyrstu vinnuhelginni er nemendum kennt að nota kennslukerfið MyScool sem er mjög notendavænt.

Nánari upplýsingar um Mátt kvenna veitir verkefnastjóri símenntunar, Geirlaug Jóhannsdóttir, í síma 433 3015 eða með tölvupósti: geirlaug@bifrost.is.  


Póstlisti

Hér er hægt að skrá sig á póstlista og fá sendar fréttir af verkefninu. Fylgstu með !!


Speki dagsins

Ég trúi því að við eigum öll möguleika á því að lifa ævintýralegu lífi en það er mikið ævintýri að axla ábyrgð dag eftir dag.
William Gordon

Atvinnumál kvenna á facebook
Atvinnumál kvenna á twitter

Stćkka og minnka texta

Auđlestrarhamur Stćkka letur Minnka letur

English information

Information in english

Danish information

Information pa dansk