Lćrum og leikum međ hljóđin - Fréttir
19.9.2011
Lćrum og leikum međ hljóđin
Námstefna um notkun Lærum og leikum með hljóðin í skólastarfi og með foreldrum verður haldin þann 23. september að Grand Hóteli, Gullteigi kl. 13.00 – 17.00. Námstefnustjóri verður Dr. Jóhanna Einarsdóttir, talmeinafræðingur, lektor við HÍ.
Námstefnan er öllum opin.
Hér að neðan má finna dagskrá námsstefnunnar auk annara hagnýtra upplýsinga.
12.15 - 13.00 Skráning og afhending gagna
13.00 - 13.10 Setning: Frú Vigdís Finnbogadóttir
Frú Vigdís Finnbogadóttir, fyrrverandi forseti Íslands, er velgjörðarsendiherra UNESCO í tungumálum. Hún gerir okkur þann heiður að setja ráðstefnuna.
13.10 - 13.30 Forsendur hlustunar og hljóðmyndunar hjá börnum – Bryndís Guðmundsdóttir talmeinafræðingur hjá Talþjálfun Reykjavíkur og Raddlist ehf.
Heyrandi ungbörn læra tungumál í umhverfi sínu í gegnum hlustun. Þau byrja lífið undirbúin fyrir tal. Hér mun Bryndís kynna hvað þarf til að eðlileg hljóðmyndun geti átt sér stað í gegnum heyrn og hlustun frá því að barnið er í móðurkviði og þar til það fer að hjala. Hún kynnir taugalíffræðilegar forsendur fyrir hlustun og tali.
13.30 - 14.00 Lærum og leikum með hljóðin. Aðferðin – hver er hún og hvernig varð hún til?
Hvernig hvetjum við til réttrar hljóðmyndunar? Hér kynnir Bryndís leitina að leið til að auðvelda leiðbeinendum barna að vinna skref fyrir skref, frá hinu einfalda til hins flókna – sem endar með framsetningu efnisins Lærum og leikum með hljóðin.
14.00 - 14.30 Lærum og leikum með hljóðin í starfi – Notkun efnisins og þróun þess.
Kynnt eru lifandi dæmi um hvernig við löðum fram hljóðmyndun og styrkjum undirbúningsfærni fyrir lestur á einfaldan, skemmtilegan og hvetjandi hátt. Kynnt verður nýtt íslenskt efni sem styður við aðferðafræði „Lærum og leikum með hljóðin“; nýr DVD diskur þar sem Máni og Maja, í flutningi Felix Bergssonar og Védísar Hervarar, leiða áhorfandann um heim hljóðanna, flokkunarkassar fyrir öll myndaspjöldin, nýir íslenskir límmiðar sem tilheyra efninu ásamt nýjum sérgerðum borð-listamottum fyrir heimilið og skólann. Allt gert til að hvetja til réttrar hljóðmyndunar hjá barninu.
14.30 - 15.00 Kaffi og meðlæti - sýning og tónlist.
Hér er boðið upp á kaffi og gott meðlæti. Námsgögn kynnt frekar í sal og anddyri með sérstökum kynningarafslætti fyrir þátttakendur. Tónlist: þemalag „Lærum og leikum með hljóðin“ og myndir úr starfinu um allt land.
15.00 - 15.20 Að tjá sig af öryggi – samskiptafærni og ráð til að efla sjálfstraust. Það læra börnin sem fyrir þeim er haft! Sigríður Arnardóttir (Sirrý) - Sigríður Arnardóttir, félags- og fjölmiðlafræðingur, betur þekkt sem fjölmiðlakonan Sirrý, verður með létt og líflegt erindi. Hvernig foreldrar, kennarar og aðrar uppeldisstéttir tjá sig hefur mikil áhrif á tjáningarmáta og sjálfstraust barna. Enda læra börn það sem fyrir þeim er haft. Erindið einkennist af hagnýtum ráðum og aðferðum við að koma fram af öryggi. Sirrý hefur 25 ára fjölmiðlareynslu og hefur á undanförnum árum haldið vinsæl námskeið og fyrirlestra í samskiptafærni og öruggri tjáningu. M.a. þjálfar hún nemendur Háskólans á Bifröst í framsækni og öruggri tjáningu.
15.20 - 16.20 Lærum og leikum í starfinu – Stutt innlegg fagfólks um eigin reynslu af mismunandi notkun efnisins.
- Að efla orðaforða barna í tengslum við námsefnið Lærum og leikum með hljóðin - Árdís Hrönn Jónsdóttir M.Ed. leikskólakennari og sérkennslustjóri í Tjarnarseli í Reykjanesbæ. Síðastliðin tvö ár hefur þróunarverkefnið Bók í hönd og þér halda engin bönd verið í gangi í leikskólanum Tjarnarseli. Markmið verkefnisins er að efla orðaforða og hlustunarskilning barnanna með bóklestri. Unnið er eftir aðferð sem kallast Orðaspjall sem felst í að leikskólakennarinn velur orð úr barnabók til að kenna og leika með. Leitast er við að flétta Orðaspjallsaðferðina inn í allt málörvunarstarf leikskólans, þar með talið námsefnið Lærum og leikum með hljóðin.
- Lærum og leikum í starfinu. Árangur í sérkennslustarfi - Jórunn Ella Þórðardóttir, grunnskólakennari og umsjónarmaður sérkennslu. Jórunn Ella fjallar um Lærum og leikum með hljóðin í sérkennslustarfi á leikskólanum Hlíðaborg.
- Lærum og leikum með hljóðin með hugmyndafræði Hjallastefnunnar að leiðarljósi - Brynja Vermundsdóttir, sérkennslustjóri á leikskólanum Gimli fjallar um árangur af nálgun sinni með efnið í sérkennslu- og skipulögðu hópastarfi.
- Markviss stafa og lestrarkennsla tengd við Lærum og leikum með hljóðin - Ólöf Guðmundsdóttir, aðstoðar- leikskólastjóri og sérkennari á Heiðarseli kynnir nálgun skólans í vinnu með börnum og sérstaklega til undirbúnings lesturs fyrir grunnskóla. Skólinn hlaut hvatningarverðlaun Fræðsluráðs Reykjanesbæjar vorið 2011 fyrir markvissa stafa- og lestrarkennslu.
- Að laða íslensku málhljóðin fram hjá nemendum með íslensku sem annað tungumál með aðferðafræði Lærum og leikum með hljóðin - Unnur G.Kristjánsdóttir grunnskólakennari með áherslu á kennslu barna sem hafa íslensku sem annað tungumál. Unnur deilir reynslu úr starfi nýbúadeildar í Holtaskóla í Reykjanesbæ.
16.30 - 16.40 Hvatning. Að gefast aldrei upp! Sigríður Rut Stanleysdóttir foreldri
16.40 - 16.45 Samantekt i námstefnulok: Bryndís Guðmundsdóttir talmeinafræðingur
16.45 - 17.00 Lok ráðstefnu - Námsgögn kynnt áfram í sal og anddyri – Myndband, tónlist, myndir úr starfinu um allt land.
Námstefnugjald kr. 7500 / Námstefnutilboð á fjölbreyttu efni Lærum og leikum með hljóðin
Skráning á netfangið: laerumogleikum@gmail.com
Fram komi: Nafn þátttakanda og starfsheiti ásamt nafni, heimilisfangi og kt. greiðanda








