Sköpun og skemmtilegheit fyrir börn ! - Fréttir
30.9.2011
Sköpun og skemmtilegheit fyrir börn !
Síðastliðið vor fengu þær Halldóra, Íris og Sonja styrk til að þróa vöru sína Snuggery sem er einskonar leikföng fyrir börn.Okkur langaði að forvitnast meira um
verkefnið og tókum þær stöllur tali.
Hvað er Snuggery?
"Snuggery er vara ætluð börnum, frá 3 mánaða til 7 ára aldurs, með það í huga að frjóvga ímyndunarafl barnsins. Um er að ræða teppi, skjól, hús eða hvað það eina sem barnið vill óska sér. Blómalagað formið hefur 5 arma með fimmhyrndum botni sem gefur vörunni meira en eitt notagildi því er formið breytilegt og höfðar til sköpunargáfu barnanna. Það má segja að hlutverk Snuggery sé að þróast með barninu við leik þess".
Hverjar eru konurnar ?
"Halldóra, Íris Rán og Sonja Björk heitum við sem stöndum að Snuggery. Við útskrifuðumst allar frá Istituto Europeo di Design í Milano sumarið 2010. Halldóra og Sonja sem innanhússhönnuðir og Íris sem iðnhönnuður. Sonja ákvað að fara beint í mastersnám í Politecnico di Milano en Halldóra og Íris ákváðu að flytjast aftur til Íslands og sjá hvað landið hefði uppá að bjóða og reyna fyrir sér sem hönnuðir á Íslandi".
Hvernig kom hugmyndin að verkefninu?
"Hugmynd okkar að Snuggery fæddist þegar við vorum í náminu en í rannsóknarvinnu okkar leituðum við meðal annars aftur til okkar eigin bernsku og hvað okkur fannst skemmtilegast að gera.
Við komumst að því að við vildum skapa nýja vöru sem væri bæði húsgagn og leikfang og myndi gefa barninu fjölbreytta notkunarmöguleika eftir eigin hugsun og ímyndunarafli".
Hvað hvetur ykkur mest áfram ?
"Hvað hönnun og sköpun varðar þá hvetur það okkur mest að geta breytt hugsun í veruleika og að móta framtíðina með hönnun okkar. Mesta hvatningin hvað varðar hönnun Snuggery voru góðar móttökur á frumkvöðla- og stjórnunarnámskeiði hjá Nýsköpunarmiðstöð Íslands. Þar fundum við að verkefnið gat átt framtíð fyrir sér og ákváðum að halda ótrauðar áfram".
Hvað er erfiðast að takast á við sem frumkvöðull?
"Fjárhagslega hliðin er kannski það sem er erfiðast, en svo eru ýmsir þættir sem erfitt er að sinna eins og framleiðsla hérlendis er eitthvað sem maður hleypur ekkert að".
Hvað er framundan hjá ykkur?
"Við erum að vinna í því að fullþróa vöruna til að hún verði tilbúin fyrir framleiðslu. Hluti af því er að útbúa prótótýpu í fullri stærð þar sem ætlunin er að kanna hvaða framleiðsluaðferð hentar best. Einnig erum við að skoða hvaða samsetning efna passar best við vöruna".











