Beint á leiđarkerfi vefsins
Atvinnumál kvenna

Netagerđin opnar - Fréttir

5.10.2011

Netagerđin opnar

Þann 6. október mun opna að Nýlendugötu 16 nýtt hönnunargallerí; Netagerðin work&shop. Bak við Netagerðina work&shop standa 7 konur; Helga Guðrún Vilmundadóttir og Árný Þórarinsdóttir sem starfa undir nafninu Stáss, Olga Hrafnsdóttir og Elísabet Jónsdóttir sem starfa undir nafninu Volki, Bryndís Bolladóttir textílhönnuður, Anna María Sigurjónsdóttir ljósmyndari og Sigga Heimis iðnhönnuður. 

Húsið sjálft hefur til nokkura ára verið kallað Liboriushúsið en nafnið Netagerðin er dregin af því að í húsinu starfaði í fjöldamörg ár Netagerð Reykdals Jónssonar.  Hugmyndin á bak við Netagerðina er að þarna koma ólíkir hönnuðir saman með vinnustofu sínar og vörur, þar sem hægt er að kaupa milliliðalaust af hönnuðum. Vörurnar styrkja hvor aðra og mynda sterka heild og skemmtilega upplifun. 

Við hlið Netagerðarinnar work&shop opnar einnig veitingastaðurinn Forréttabarinn, sem eins og nafnið segir til um, mun framreiða ólíka forrétti úr ýmsum áttum.  Á efri hæðum hússins eru auk þess fjölda listamanna með vinnustofur á leigu á vegum SÍM, sambandi Íslenskra myndlistamanna." 


Póstlisti

Hér er hægt að skrá sig á póstlista og fá sendar fréttir af verkefninu. Fylgstu með !!


Speki dagsins

Ég trúi því að við eigum öll möguleika á því að lifa ævintýralegu lífi en það er mikið ævintýri að axla ábyrgð dag eftir dag.
William Gordon

Atvinnumál kvenna á facebook
Atvinnumál kvenna á twitter

Stćkka og minnka texta

Auđlestrarhamur Stćkka letur Minnka letur

English information

Information in english

Danish information

Information pa dansk