Kynningarfundur fyrir félagskonur í Kvenn og Korku - Fréttir
13.10.2011
Kynningarfundur fyrir félagskonur í Kvenn og Korku
Föstudaginn 14.október verður kynningarfundur fyrir félagskonur í Kvenn og Korku á starfsemi SVANNA lánatryggingasjóðs. Fundurinn er haldinn í húsnæði Klaks, Ofanleiti 2, stofu 401, 4 hæð. Á fundinum verður kynnt með hvaða hætti fyrirtæki kvenna og konur sem hafa góða viðskiptaáætlun geta nýtt sér þjónustu SVANNA en þessum sjóði er ætlað að veita konum til að styðja þær til þátttöku og nýsköpunar í atvinnulífinu. Þá mun Landsbankinn einnig kynna nýja nýsköpunarþjónustu bankans.
Steinunn Valdís Óskarsdóttir, formaður SVANNA, Ásdís Guðmundsdóttir, starfsmaður sjóðsins, Arnheiður Gísladóttir útibústjóri og Margrét O. Ásgeirsdóttir sérfræðingur nýsköpunarþjónustu hjá Landsbankanum munu kynna sjóðinn og nýsköpunarþjónustu hjá Landsbankanum.








