Könnun međal styrkhafa atvinnumála kvenna - Fréttir
13.10.2011
Könnun međal styrkhafa atvinnumála kvenna
Nýlega var gerð könnun meðal styrkhafa atvinnumála kvenna árið 2010. Í könnunni var spurt um hvernig styrkur nýttist og hvort
styrkhafi ætlaði að halda áfram með viðskiptahugmynd sína. Einnig var gerð þarfagreining hvað varðar fræðslu af ýmsu tagi og spurt hvort viðkomandi hefði fengið ráðgjöf vegna hugmyndar sinnar. Einnig var svarendum gefinn kostur á því að koma með ábendingar um efni á heimasíðu.
55 styrkhafar fengu styrk árið 2010 og svöruðu 36 af þeim könnuninni, flestar af höfuðborgarsvæðinu eða helmingur. 85% svöruðu því til að styrkurinn nýttist mjög vel eða vel og 83% hafa hug á því að halda áfram að vinna að viðskiptahugmynd sinni.
Hvað þýddi styrkveitingin fyrir þig?
Svarendum var gefinn kostur á því að segja hvað styrkveitingin þýddi fyrir þær. Það sem helst var nefnt var að styrkurinn hefði verið hvatning til að halda áfram og að styrkir sem þessir væru mikil viðurkenning fyrir konur og verkefni þeirra.
Hvaða fræðslu myndir þú vilja fá sem tengist viðskiptahugmynd þinni?
66% af svarendum höfðu hug á því að fá fræðslu er tengist viðskiptahugmynd þeirra og var hægt að merkja við nokkra þætti. Um helmingur svarenda höfðu áhuga á því að fá fræðslu um markaðsmál, samningatækni, bókhald, fjármál og vöruþróun.
Ráðgjöf
Einnig var spurt hvort viðkomandi hefði sótt sér ráðgjöf og hvort áhugi væri fyrir því að fá ráðgjöf. 64% kvenna höfðu sótt sér ráðgjöf af einhverju tagi og 80% sögðust vilja nýta sér ráðgjöf. Flestar vildu nýta sér persónulega handleiðslu/markþjálfun eða 68%, helmingur vill nýta sér hefðbunda rekstrar- og viðskiptaráðgjöf, þriðjungur net- eða símaráðgjöf og fimmtungur viðtöl hjá atvinnuráðgjöfum. Hægt var að merkja við fleiri en einn valmöguleika.
Þátttakendur gátu komið með ábendingar um efni á heimasíðuna. Það sem helst var nefnt var fræðsla um bókhald og rekstur og fréttir af verkefnum kvenna.
Styrkhafar fylgjast vel með heimasíðu Atvinnumála kvenna en 80% svarenda nýta sér síðuna. Aðeins færri fylgjast með á facebook eða 67%.








