Umsóknarfrestur í Svanna útrunninn - Fréttir
20.10.2011
Umsóknarfrestur í Svanna útrunninn
Umsóknarfrestur um lánatryggingar hjá Svanna - lánatryggingasjóð rann út á miðnætti og bárust 32 umsóknir að þessu sinni. Nú hefst vinna við að fara yfir og meta þær umsóknir sem bárust, fyrst af stjórn sjóðsins en síðan mun Landsbankinn meta þær í kjölfarið.
Stefnt er að því að afgreiða umsóknir innan 6 vikna en nánari fréttir munu verða settar á heimasíðu verkefnisins www.svanni.is þegar þar að kemur.








