Beint á leiđarkerfi vefsins
Atvinnumál kvenna

Átak til atvinnusköpunar - Fréttir

14.12.2011

Átak til atvinnusköpunar

Nýsköpunarmiðstöð hefur nú úthlutað sextíu umsækjendum styrki úr stuðningsverkefninu Átak til atvinnusköpunar en alls bárust 279 umsóknir. Til umráða voru 52 milljónir og námu styrkupphæðir frá fjögurhundruð þúsund krónum til tveggja milljóna. Sjá má lista yfir úthlutun á heimasíðu Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands www.nmi.is  
Styrkirnir eru hluti af styrkáætlun iðnaðarráðuneytis fyrir frumkvöðla- og nýsköpunarfyrirtæki og hefur Nýsköpunarmiðstöð Íslands umsjón með umsóknarferli og úthlutun. Markmiðið er að styðja við þróun nýsköpunarhugmynda á fyrstu stigum auk þess að styðja við undirbúning og framkvæmd markaðsaðgerða í frumkvöðla- og sprotafyrirtækjum. Úthlutað er tvisvar á ári og verður næst auglýst eftir umsóknum í janúar 2012.


Póstlisti

Hér er hægt að skrá sig á póstlista og fá sendar fréttir af verkefninu. Fylgstu með !!


Speki dagsins

Ég trúi því að við eigum öll möguleika á því að lifa ævintýralegu lífi en það er mikið ævintýri að axla ábyrgð dag eftir dag.
William Gordon

Atvinnumál kvenna á facebook
Atvinnumál kvenna á twitter

Stćkka og minnka texta

Auđlestrarhamur Stćkka letur Minnka letur

English information

Information in english

Danish information

Information pa dansk