Beint á leiðarkerfi vefsins
Atvinnumál kvenna

Ísland allt árið - Fréttir

15.12.2011

Ísland allt árið

Landsbankinn og iðnaðarráðuneytið auglýsa nú eftir umsóknum í þróunarsjóðinn „Ísland allt árið“ en markmið hans er að styðja við lengingu ferðamannatímabilsins og skapa heilsársstörf í greininni. Heildarframlag sjóðsins er 70 milljónir króna sem verður varið til verkefna á þessu og næsta ári.    Markmiðið er að styðja annars vegar við verkefni fyrirtækja sem lengt geta ferðamannatímann á tilteknum svæðum og hins vegar við samstarfsverkefni fyrirtækja.  Í umsókn þarf að setja fram skýrar hugmyndir um þá þjónustu og upplifun sem skila eiga í senn aukinni atvinnu og varanlegum verðmætum.
Skilyrði er að verkefnin komi til framkvæmda innan þriggja ára frá því að styrkur er veittur. Umsóknarfrestur er til 10. janúar 2012 og er gert ráð fyrir að styrkir verði veittir í febrúar.

Finna má nánari upplýsingar  hér.


Póstlisti

Hér er hægt að skrá sig á póstlista og fá sendar fréttir af verkefninu. Fylgstu með !!


Speki dagsins

Ég trúi því að við eigum öll möguleika á því að lifa ævintýralegu lífi en það er mikið ævintýri að axla ábyrgð dag eftir dag.
William Gordon

Atvinnumál kvenna á facebook
Atvinnumál kvenna á twitter

Stækka og minnka texta

Auðlestrarhamur Stækka letur Minnka letur

English information

Information in english

Danish information

Information pa dansk