Úthlutun lánatrygginga lokiđ - Fréttir
3.1.2012
Úthlutun lánatrygginga lokiđ
Rétt fyrir áramót var lánatrygginum úr Svanna – lánatryggingasjóðs kvenna úthlutað í fyrsta skipti en alls bárust 32 umsóknir. Sjóðurinn er í samstarfi við Landsbankann sem veitir lánin og nemur lánatrygging sjóðsins helming lánsupphæðar. Að þessu sinni fengu fimm umsækjendur lán að upphæð samtals 14.500.000 og nemur því lánatrygging sem veitt var úr sjóðnum kr 7.250.000.
Næsta úthlutun mun verða auglýst fljótlega en stefnt er að því að hafa tvær úthlutanir á ári, eina að vori og eina að hausti.
Nánari upplýsingar um sjóðinn má finna á heimasíðu sjóðsins www.svanni.is
Einnig er hægt að hafa samband við starfsmann sjóðsins í síma 582-4914 eða í netfangið asdis.gudmundsdottir@vmst.is








