Beint á leiðarkerfi vefsins
Atvinnumál kvenna

Ísland allt árið ! - Fréttir

4.1.2012

Ísland allt árið !

Landsbankinn og iðnaðarráðuneytið auglýsa eftir umsóknum um styrki í þróunarsjóðinn, Ísland allt árið. Markmið sjóðsins er að lengja ferðamannatímabilið á Íslandi, með því að styrkja þróun afurða og upplifana utan háannatíma ferðaþjónustu og auka þannig arðsemi fyrirtækja í geiranum.

Stutt verður annars vegar við verkefni fyrirtækja sem geta lengt ferðamannatímann á tilteknum svæðum og hins vegar við samstarfsverkefni fyrirtækja sem hafa hug að því að þróa sameiginlega þjónustu sem gæti lengt ferðamannatímabil á landsvísu eða á fleiri svæðum á landinu.

Í umsókn þurfa að koma fram skýrar hugmyndir um þá þjónustu og upplifun sem skila eiga í senn aukinni atvinnu og varanlegum verðmætum. Verkefnin verða að koma til framkvæmda innan þriggja ára frá því að styrkur er veittur.

Umsóknarfrestur er til 10. janúar 2012 og er gert ráð fyrir að styrkir verði veittir í febrúar.

Allar nánari upplýsingar er að finna á landsbankinn.is


Póstlisti

Hér er hægt að skrá sig á póstlista og fá sendar fréttir af verkefninu. Fylgstu með !!


Speki dagsins

Ég trúi því að við eigum öll möguleika á því að lifa ævintýralegu lífi en það er mikið ævintýri að axla ábyrgð dag eftir dag.
William Gordon

Atvinnumál kvenna á facebook
Atvinnumál kvenna á twitter

Stækka og minnka texta

Auðlestrarhamur Stækka letur Minnka letur

English information

Information in english

Danish information

Information pa dansk