Beint á leiđarkerfi vefsins
Atvinnumál kvenna

Atvinnu- og nýsköpunarhelgi í Reykjavík - Fréttir

12.1.2012

Atvinnu- og nýsköpunarhelgi í Reykjavík

Atvinnu- og nýsköpunarhelgin (ANH) er samstarfsverkefni Innovit nýsköpunar- og frumkvöðlaseturs og Landsbankans. Nú þegar hafa tvær helgar verið haldnar á Suðurnesjum og Hornafirði en viðburðurinn er að erlendri fyrirmynd sem reynst hefur vel og eru viðlíka helgar haldnar um allan heim (e. Startup Weekend).

Helgina 13. til 15. janúar næstkomandi verður Atvinnu- og nýsköpunarhelgin haldin í Reykjavík og fer viðburðurinn fram í Háskóla Íslands, í stofu 201 í byggingunni Árnagarði.

Opnað hefur verið fyrir skráningu á heimasíðu verkefnisins þar sem einnig má finna nánari upplýsingar en viðburðurinn er opinn öllum og er þátttakendum að kostnaðarlausu.

Hægt er að skrá sig með því að smella hér

Markmið helganna er að virkja fólk til athafna og er hver helgi hugsuð sem vettvangur fyrir þá sem langar að koma eigin viðskiptahugmynd í framkvæmd eða taka þátt í uppbyggingu hugmynda annarra. Viðburðirnir standa yfir frá föstudegi til sunnudags og þar fá þátttakendur tækifæri til að vinna að hugmyndum sínum og njóta leiðsagnar og innblásturs frá sérfróðum aðilum.

Fyrirkomulag:

  • Þátttakendur halda stutta kynningu á viðskiptahugmynd sem þeir vilja vinna að yfir helgina. Það er í góðu lagi að hugmyndin sé á byrjunarpunkti og kvikni jafnvel á staðnum.
  • Allir þátttakendur, líka þeir sem kynna viðskiptahugmyndir, eru beðnir um að velja 3 hugmyndir sem þeim fannst hljóma best í kynningunni sem var haldin.
  • Kannað er hvaða hugmyndir fengu mestan hljómgrunn og unnið er áfram með þær yfir helgina. Þátttakendur skipta sér í teymi og vinna að uppbyggingu þeirra hugmynda sem taldar voru bestar. Þátttakendum er jafnframt velkomið að vinna sérstaklega í sínum hugmyndum yfir helgina.
  • Settar eru ítarlegar vörður um hvernig beri að þróa viðskiptahugmyndina yfir helgina og hvaða vörðum hópurinn ætli sér að ná.
  • Unnið er af hörku alla helgina og fjölmargir einstaklingar líta við og aðstoða við uppbyggingu hugmyndanna.

Póstlisti

Hér er hægt að skrá sig á póstlista og fá sendar fréttir af verkefninu. Fylgstu með !!


Speki dagsins

Ég trúi því að við eigum öll möguleika á því að lifa ævintýralegu lífi en það er mikið ævintýri að axla ábyrgð dag eftir dag.
William Gordon

Atvinnumál kvenna á facebook
Atvinnumál kvenna á twitter

Stćkka og minnka texta

Auđlestrarhamur Stćkka letur Minnka letur

English information

Information in english

Danish information

Information pa dansk