Brautargengisnámskeið að hefjast - Fréttir
26.1.2012
Brautargengisnámskeið að hefjast
Brautargengi er námskeið fyrir konur sem vilja hrinda viðskiptahugmynd í framkvæmd og hefja eigin rekstur og fyrir konur sem eru í atvinnurekstri en vilja auka rekstrarþekkingu sína. Námskeiðið er sérsniðið fyrir konur sem hafa viðskiptahugmynd sem þær vilja hrinda í framkvæmd með nýju eða starfandi fyrirtæki.
Meginskilyrði eru að þátttakandi hafi viðskiptahugmynd til að vinna með, sé að hefja rekstur eða sé nú þegar í rekstri.
Næstu námskeið hefjast á Selfossi þann 9. febrúar og í Reykjavík þann 13. febrúar en frekari upplýsingar má nálgast á heimasíðu Nýsköpunarmiðstöð Íslands - http://www.nmi.is/impra/namskeid/brautargengi/








