Beint á leiðarkerfi vefsins
Atvinnumál kvenna

Frumkvöðlakeppnin Gulleggið 2012 - Fréttir

18.1.2012

Frumkvöðlakeppnin Gulleggið 2012

Innovit stendur árlega fyrir Gullegginu, frumkvöðlakeppni en keppnin er haldin að fyrirmynd MIT háskóla í Bandaríkjunum og VentureCup á Norðurlöndunum.  Meginmarkmið keppninnar er að skapa vettvang fyrir ungt athafnafólk til að öðlast þjálfun og reynslu í mótun nýrra viðskiptahugmynda og rekstri fyrirtækja. Þannig er keppnin orðin gæðastimpill á viðskiptahugmyndir og fyrir frumkvöðla sem munu á næstu árum laða að enn fleiri fjárfesta, skapa ný störf og verðmæti fyrir íslenskt þjóðfélag.

Auglýst er eftir umsóknum í keppnina árið 2012 og er hægt að sækja um með því að smella hér.

Keppnin er frábært tækifæri fyrir frumkvöðla til að koma hugmyndum sínum á framfæri og gera úr þeim raunverulegar og markvissar áætlanir sem miða að stofnun fyrirtækja. Samhliða keppninni er þátttakendum boðið upp á námskeið, ráðgjöf og aðstoð sérfræðinga. Frá mótun hugmyndar til áætlanagerðar og þjálfunar í samskiptum við fjárfesta.

Þátttaka í frumkvöðlakeppni Innovit er skemmtileg og krefjandi áskorun sem nýtist þátttakendum til framtíðar. Sú reynsla og þekking sem þátttakendur öðlast nýtist afar vel þegar út í atvinnulífið er komið, hvort heldur sem er hjá nýstofnuðum sprotafyrirtækjum eða stærstu fyrirtækjum landsins. Frumkvöðlakeppni Innovit er þrískipt og byggir fyrst á mótun viðskiptahugmynda, næst á gerð viðskiptaáætlana og síðast á kynningu fyrir hópi sérfræðinga og fjárfesta.

(Tekið af síðu Innovit)


Póstlisti

Hér er hægt að skrá sig á póstlista og fá sendar fréttir af verkefninu. Fylgstu með !!


Speki dagsins

Ég trúi því að við eigum öll möguleika á því að lifa ævintýralegu lífi en það er mikið ævintýri að axla ábyrgð dag eftir dag.
William Gordon

Atvinnumál kvenna á facebook
Atvinnumál kvenna á twitter

Stækka og minnka texta

Auðlestrarhamur Stækka letur Minnka letur

English information

Information in english

Danish information

Information pa dansk