Beint á leiðarkerfi vefsins
Atvinnumál kvenna

Úthlutun styrkja til atvinnumála kvenna - Fréttir

17.4.2009

Úthlutun styrkja til atvinnumála kvenna

  Félags- og tryggingamálaráðuneytið úthlutar 25 milljónum króna til atvinnumála kvenna

Umhverfisvænar byggingareiningar, táknmálsvefur, rjómabú, baðhús í Stykkishólmi, þaraböð á Reykhólum, örlitameðferð til að bæta útlit eftir veikindi eða slys og hólkar úr bylgjupappír sem nota má sem skilrúm eru á meðal þeirra viðskiptahugmynda sem fá úthlutað úr sjóði félags- og tryggingamálaráðuneytis til atvinnumála kvenna að þessu sinni.

Í ár barst 261 umsókn en umsóknir hafa aldrei verið fleiri síðan byrjað var að veita styrkina árið 1991 að frumkvæði Jóhönnu Sigurðardóttur þáverandi félagsmálaráðherra. Nú eru til úthlutunar 25 milljónir króna. Alls er úthlutað til 38 viðskiptahugmynda og nema hæstu styrkirnir tveimur milljónum króna en þeir lægstu nema 300 þúsundum króna.

Ásta R. Jóhannesdóttir, félags- og tryggingamálaráðherra, afhenti styrkina við athöfn í Iðnó í dag. Ráðherra sagði að „það væri svo sannarlega mikil ástæða til þess nú að ýta undir frumkvöðlastarf og uppbyggingu nýrra atvinnutækifæra." Ráðherra hrósaði umsækjendum fyrir hugmyndaauðgi og sagði „að verðlaunahugmyndirnar sýndu svo ekki væri um villst að á Íslandi væri sköpunarkraftur og kvenauður mikill."

Tvær viðskiptahugmyndir fá úthlutað tveimur milljónum króna. Annar styrkurinn er til vöruþróunar og markaðssetningar á umhverfisvænum byggingareiningum sem geta nýst sem skjól og tengst saman í stærri skýli, lengju eða hring. Hinn styrkurinn er til þróunar táknmálsvefs þar sem hægt er að læra táknmál og fræðast um menningu og sögu táknmálsins.

Þá er 1,8 milljón króna úthlutað til þróunar hugmyndar um rjómabú á Erpsstöðum til að framleiða ýmsar vörutegundir eins og ís, eftirrétti og osta. Baðhús sem nýtir heilsuvatnið í Stykkishólmi og þaraböð á Reykhólum fá hvort um sig úthlutað 1,5 milljón króna. Einni milljón króna er veitt til vöruþróunar á hólkum úr bylgjupappír sem krækjast saman og mynda færanlegt skilrúm og þróun örlitameðferðar, svokallað medical tatto, sem er notað til að lagfæra útlit eftir veikindi eða slys.

Á meðal annarra viðskiptahugmynda sem fá styrk á bilinu 300-600 þúsundum króna má nefna þróun ungbarnamatar, barnagull, rauntímatæringamælingar og spilið litróf trúarbragða svo fátt eitt sé talið.

Síðan styrkveitingarnar hófust fyrir 18 árum hefur fjöldi kvenna hlotið styrki til verkefna víðsvegar um landið og óhætt að fullyrða að þeir hafa oft skipt sköpum um framtíð, vöxt og viðgang góðra atvinnuhugmynda. Styrkirnir eru ætlaðir sem mótvægisaðgerð til að skapa konum tækifæri í viðskiptum og auka aðgengi þeirra að fjármagni. Um styrkina til atvinnusköpunar kvenna gilda þær reglur að styrkhæf verkefni skulu vera í eigu kvenna að minnsta kosti til helminga og stjórnað af konum. Þá skal verkefnið fela í sér atvinnusköpun til frambúðar og vera nýmæli á því sviði sem um ræðir. Auk þess eru gerðar kröfur um að viðskiptahugmyndin sé vel útfærð, markmið skýr og leiðir að þeim vel útfærðar.

Á vefsvæðinu http://www.atvinnumalkvenna.is/ má fræðast nánar um verkefnin, styrkveitinguna og reglur um styrkveitingar.

Póstlisti

Hér er hægt að skrá sig á póstlista og fá sendar fréttir af verkefninu. Fylgstu með !!


Speki dagsins

Ef þér finnst þú of lítil til að geta haft áhrif, prófaðu þá að hátta hjá moskítóflugu.
Anita Roddick

Atvinnumál kvenna á facebook
Atvinnumál kvenna á twitter

Stækka og minnka texta

Auðlestrarhamur Stækka letur Minnka letur

English information

Information in english

Danish information

Information pa dansk