Tvö spennandi Feng shui námskeiđ - Fréttir
17.11.2009
Tvö spennandi Feng shui námskeiđ
Námskeið fimmtudaginn 26. nóvember 2009 kl. 20 - 22:
Virkjaðu aðlöðunarlögmálið með aðferðum Feng Shui
Marie Diamond talar um og útskýrir hvernig allt í lífi þínu snýst um útgeislun og aðlöðun. Hugsanir þínar, tilfinningar þínar, aðgerðir og umhverfi þitt framkalla veruleika þinn. Til þess að flýta fyrir árangri í lífinu á sem auðveldastan hátt, kennir Marie okkur að stilla þessi atriði saman, með sama ásetningi og markmiði.
$30 / kr. 3.788
Miði fyrir tvo $55 / kr. 6.888
Námskeið laugardaginn 28. nóvember 2009 kl. 10 - 17:
Nýttu þér lögmál útgeislunar til að ná markmiðum þínum fyrr
Marie Diamond Feng Shui meistari kennir þér hvernig þú þarft að huga betur að því hvaða skilaboð þú ert að senda frá þér og hvernig þú getur nýtt lögmál útgeislunar til að nýta virkni aðlöðunarlögmálsins enn betur. Hér lærir þú hvernig þú getur samstillt innri þætti markmiðanna þinna og umhverfisins sem þú lifir og hrærist í. Á þessu námskeiði talar Marie Diamond um ýmis atriði sem oft virðast vanta þegar fólk er að vinna með aðlöðunarlögmálið og geta valdið því að markmiðin sem þú vinnur að og markmiðamyndirnar þínar virka ekki sem skyldi. Marie kennir þér ýmis einföld atriði sem þú getur nýtt þér strax til þess að breyta lífi þínu og fjölskyldu þinnar svo um munar.
$ 108 / kr. 13.448
Miði fyrir tvo $ 176 / kr. 21.908 ( fyrir hvorn um sig = kr. 10.954)
Millifærsla á bankareikning
Ţátttökugjaldið er lagt inn á bankareikning 319 - 13 - 1468, reikningurinn er á nafninu Jóna Björg Sætran, kt. 1404524249. Taktu fram 26.11. EÐA 28.11. sem skýringu.
Nánari upplýsingar og skráning eru í síma 899 4023 eða senda mér tölvupóst í jona@namstaekni.is








