Feng Shui áhrif á hið innra sem ytra - því allt hefur áhrif! - Fréttir
12.11.2009
Feng Shui áhrif á hið innra sem ytra - því allt hefur áhrif!
fagurlega myndskreyttar fræðibækur með myndum sem sýndu hýbíli, skrifstofur, fyrirtæki eða landssvæði sem virtist vera svo mikil ró yfir. Ró, en ekki stöðnun, ró með mikilli og jákvæðri orku. Ég lét mér nægja að skoða myndirnar og dáðst að myndefninu því mér þóttu útskýringarnar of knappar til að þær nýttust mér til fulls.
Það var svo árið 2005 að ég kynnist Marie Diamond Feng Shui meistara frá Belgíu og ákvað þá að nú væri kominn tími á að læra að skilja þessi fræði betur og skoða hvort hægt væri að nýta þau markvisst í daglegu lífi sem viðbótaraðferð í árangursfræðunum sem eru mér svo hugleikin. Í dag er svo komið að ég fer víða til að kenna fólki að nota þessi fræði bæði heima hjá sér og í fyrirtækjum þar sem það á við.
Eftir að myndbandið The Secret var gert og sýnt um allan heim, voru margir sem tóku að skoða betur myndefnið á veggjunum hjá sér á heimilum sínum. Marie Diamond, sem er eini aðilinn frá Evrópu sem kemur fram í The Secret, talaði þar nefnilega opinskátt um hve myndefni getur haft gífurlega mikil áhrif á undirmeðvitund þína. Þetta getur haft áhrif á það sem þú gerir - og hefur ekki síður áhrif á það sem þú lætur ógert. Mynd getur laðað fram gleði og innri ánægju en getur á sambærilegan hátt aukið einmanakennd, vansæld og hryggð. Það er ekki einungis myndefnið sjálft sem hefur áhrif heldur ekki síður litirnir. Feng Shui fræðin vinna meðal annars með frumefnin fimm; eld - jörð - málm - vatn og við. Þá er unnið með eiginleika frumefnanna, form þeirra og hvaða litir tengjast þeim helst.
Lýsingin sem fellur á myndefnið getur líka skipt mál og myndefni getur hentað misvel á veggi eftir staðsetningu. Tökum dæmi um eiginkonu sem hefur í mörg ár verið ósátt við málverk sem eiginmaðurinn er mjög hrifinn af. Sé myndin færð á annan vegg þannig að bakhlið myndarinnar snúi í aðra átt en áður þá sér konan myndina hugsanlega í alveg nýju ljósi og fellur hún nú mun betur en áður. Í sumum tilvikum dugar að segtja lýsingu fyrir ofan myndina, lítinn ljóskastara sem kallar fram áður hulda liti í málverkinu sem þá glæða það meira lífi en áður.
Myndlist, hvort heldur er í formi málverka eða ljósmynda, er vinsæl til gjafa. Gefandinn vill gleðja og velur því það sem honum / henni þykir fallegt. Stundum hentar sú mynd engan veginn þeim sem þiggur en er samt sett upp á vegg til að styggja ekki gefandann. Meginreglan ætti að vera sú að forðast að hafa í kringum sig hluti af eintómri skyldurækni við látinn ástvin, eða góða og gjafmilda frænku.
Farðu nú í smárölt um íbúðina þína. Hvað ertu með á veggjunum? Taktu jafnvel myndir af myndunum, prentaðu þær út og skoðaðu þær vandlega. Á hvað ertu að horfa? Hvað með hina í fjölskyldunni? Fáðu að skyggnast inn í herbergi unglingsins á heimilinu. Hvað er þar á veggjunum? Getur verið að myndefnið endurspegli líðan ykkar að einhverju leyti? Gerðu ráðstafanir til að geta breytt um myndefni. Ef frænkan gjafmilda kemur í heimsókn og saknar þess að sjá ekki „fallegu myndina" sem hún gaf þér um árið, þá er til einföld og saklaus lausn, þú segir henni einfaldlega í léttum tón að þú sért að breyta aðeins til .... og leiðir svo talið að öðru.
Njóttu fegurðar augnabliksins, Blómstraðu og njóttu þess að vera þú!
Kærar kveðjur
Jóna Björg Sætran , M.Ed.
Námstækni ehf.
http://www.fengshui.is/








