Beint á leiðarkerfi vefsins
Atvinnumál kvenna

Opnaðu betur augun og leggðu við hlustir! - Fréttir

19.11.2009

Opnaðu betur augun og leggðu við hlustir!

Þessa dagana tekur að birta yfir borg og bæ í kvöldmyrkrinu því víða er byrjað að setja jólaseríur og annað ljósaskraut í glugga og trjágróður.  Jólaannir eru víða hafnar, kaupmenn keppast við að auglýsa ótrúleg jólatilboð og veitingastaðir auglýsa girnileg jólahlaðborð.

Í ljósi þess hve margar fjölskyldur hafa farið illa fjárhagslega á þessu ári má búast við því að það séu margir kvíðahnútar að myndast í þjóðfélaginu og hugsanlega nær þér en þú grunar.  Staðreyndin er sú að fjármálaþróunin í þessu litla þjóðfélagi okkar hefur leikið marga svo grátt að jafnvel fólk í góðri 100% vinnu sér ekki út úr greiðsluerfiðleikum og á ekki fyrir mat fyrir sig og börnin sín þegar líða tekur á mánuðinn. Peningaskorturinn er ekki til kominn vegna sóunar fjár í spilakassa, tóbak, áfengi eða aðra fíkn. Ekki heldur vegna óhóflegra innkaupa á óþarfa fatnaði, húsbúnaði  eða  utanlandsferða.  Þetta er bara „venjulegt fólk"  sem ræður ekki við afborganir af lánum, afborganir sem hafa hækkað upp úr öllu valdi. Þjónustugjöld hafa hækkað, matur hefur hækkað ............... það er óþarfi að segja meira því þetta þekkjum við öll sem búum hér á landi.

Fólk í miklum fjárhagslegum vanda getur leitað eftir aðstoð en það geta reynst mörgum þung spor sem stíga þarf til að koma sér inn fyrir dyragættina hjá hjálparstofnun og komast þannig ekki lengur hjá því að viðurkenna fyrir öðrum  - og ekki síst fyrir sjálfum sér - að geta ekki staðið á eigin fótum, að geta ekki bjargað sér. Stundum er haft á orði að margir leggi sig eftir því að leika á kerfið, séu leiknir í að nýta sér allar smugur sem fyrirfinnist í kerfinu til að fá ókeypis þjónustu, fatnað og mat. Þeir sem leggja sig niður við slíkt  leggjast ansi lágt og framkoma þeirra  ber ekki vott um  persónulegan metnað, stolt, sjálfsvirðingu, siðferðiskennd eða mannkærleika.

Snúum okkur að hópnum sem vill bjarga sér en getur það ekki hjálparlaust vegna þess hve  fjármálaheimurinn hefur leikið margan grátt. Fólk sem er atvinnulaust og jafnvel á sáralitlum bótum, fólk sem á að borga himinháar upphæðir í vexti, fólk sem er í fullri vinnu en getur varla keypt í matinn þegar búið er að standa í skilum og borga af lánunum eins og krafið er um.

Getur verið að einhver þér nákominn sé slíkum vanda? Hvað með kunningjana? Hvað með foreldra leikfélaga barnanna þinna? Hvað með þig?

Hefur þú tök á því að rétta einhverjum í kringum þig  hjálparhönd? Getur þú gert það með þeim hætti að það sé ekki mjög augljóst að þú vitir hvernig ástandið er. Fólk vill ekki ölmusu en er oft tilbúið  í að þiggja aðstoð ef hún er boðin á réttum forsendum.

Ef þú hefur ekki tök á því að veita fjárhagslega hjálp, gætir þú miðlað af færni þinni og þannig  orðið öðrum hvatning til að horfa fram á veginn í stað þess að sökkva dýpra í dimman dal þunglyndis og vonleysis?


Opnaðu augun og leggðu við hlustir! Veist þú um einhvern þér nákominn  sem sér fram á að það verði engin jól? Hlustaðu vel á fólkið þitt, vini og kunningja. Reyndu að skilja það sem ekki er sagt. Horfðu vel í kringum þig. Stundum er vandinn nær en fólk grunar.

Jólin eiga að vera hátíð allra. Jólagjafir þurfa ekki að kosta of fjár til að gleðja. Jólahlaðborð getur verið í heimahúsi fyrir fjölskylduna  og getur verið ánægjulegt þó þar séu ekki dýrindis steikur og meðlæti. Það er hægt að sníða sér stakk eftir vexti og einbeita sér að því að njóta samveru og sannrar gleði.

Getur verið að þú gætir glatt að minnsta kosti fjóra einstaklinga á einhvern hátt til að létta undir með þeim? Hugsaðu málið? Hvað gætir þú gert  fyrir þá? Það sem þú gefur öðrum skilyrðislaust og án kröfu um endurgjald getur verið svo fjölbreytilegt og þarf ekki að kosta þig mikil fjárútlát. Vertu vinur í raun. Vertu vinur vina þinna. Þú gætir líka þurft á hjálp að halda síðar.

Gangi þér vel - njóttu þess að létta undir með öðrum.

Bestu kveðjur

Jóna Björg Sætran, M.Ed.
http://www.blomstradu.net/


Póstlisti

Hér er hægt að skrá sig á póstlista og fá sendar fréttir af verkefninu. Fylgstu með !!


Speki dagsins

Ef þér finnst þú of lítil til að geta haft áhrif, prófaðu þá að hátta hjá moskítóflugu.
Anita Roddick

Atvinnumál kvenna á facebook
Atvinnumál kvenna á twitter

Stækka og minnka texta

Auðlestrarhamur Stækka letur Minnka letur

English information

Information in english

Danish information

Information pa dansk