Beint á leiðarkerfi vefsins
Atvinnumál kvenna

Eldmóður, þrautseigja og þolinmæði - Fréttir

27.11.2009

Eldmóður, þrautseigja og þolinmæði

Í alþjóðlegu athafnavikunni, sem haldin var dagana 16-22 nóvember voru haldnir opnir athafna- og hugmyndafundir á þremur stöðum á Norðurlandi vestra, á Sauðárkróki, Blönduósi og á Hvammstanga. Fundirnir voru liður í alþjóðlegri athafnaviku en tilgangurinn með henni var m.a. að benda á að allir geta lagt hönd á plóg við að færa fram eitthvað jákvætt til samfélagsins. Einnig var markmiðið að koma af stað öflugri hugmyndavinnu þar sem unnið væri með tækifæri og möguleika á svæðinu. Að fundunum stóðu Atvinnumál kvenna, Byggðastofnun, Impra á Nýsköpunarmiðstöð, Menningarráð Norðurlands vestra, Vaxtarsamningur Norðurlands vestra, Virkja - Norðvestur konur og Vinnumálastofnun Norðurlandi vestra.
Ágæt mæting var á fundina en alls sóttu þá um 40 manns.

Dagskrá fundanna var á þann veg að fyrst var kynning á þeim þáttum sem einkenna frumkvöðla og þar voru nefnd orð eins og eldmóður, orka, þrautseigja, trú á sjálfum sér og jákvæð hugsun. Eftir það var unnið var með þær hugmyndir sem fram komu meðal þátttakenda.

Reynslusaga frumkvöðuls var næst á dagskrá og þar fræddu Kristján Blöndal, Kjalfelli á Blönduósi,  Jóhann Albertsson, Sveitasetrinu Gauksmýri og Hanna Þrúður Þórðardóttir, framkvæmdastjóri Dýrakotsnammis á Sauðárkróki, viðstadda um reynslu þeirra af því að stofna og reka fyrirtæki.  Margt fróðlegt bar á góma í þeim erindum og sérstaklega skemmtilegt að heyra hvernig hugmyndir geta kviknað og orðið að öflugum atvinnutækifærum.

Í lok fundar kynntu fundarboðendur þá þjónustu og möguleika sem felast í þeirra störfum en allir sinna þeir aðstoð við frumkvöðla á Norðurlandi vestra og aðra þá sem vilja vinna með sínar hugmyndir. 

Meðfylgjandi myndir voru teknar á fundinum á Sauðárkróki.


Póstlisti

Hér er hægt að skrá sig á póstlista og fá sendar fréttir af verkefninu. Fylgstu með !!


Speki dagsins

Ef þér finnst þú of lítil til að geta haft áhrif, prófaðu þá að hátta hjá moskítóflugu.
Anita Roddick

Atvinnumál kvenna á facebook
Atvinnumál kvenna á twitter

Stækka og minnka texta

Auðlestrarhamur Stækka letur Minnka letur

English information

Information in english

Danish information

Information pa dansk