Byggðastofnun auglýsir styrki til kvenna - Fréttir
18.12.2009
Byggðastofnun auglýsir styrki til kvenna
Byggðastofnun í samstarfi við Handverk og hönnun, Listaháskóli Íslands, Nýsköpunarmiðstöð Íslands, Ímark og Útflutningsráð hefur nú auglýst lausa til umsóknar styrki um stuðning við markaðssetningu erlendis á íslensku handverki og hönnun. Heildarráðstöfunarfé er 10 milljónir króna og er hámarksstyrkur 2 milljónir en þó aldrei hærri en 50% af heildarkostnaði.
Markmið styrkjanna er að styðja við undirbúning og framkvæmd markaðsaðgerða erlendis á handverki og hönnunarvörum. Styrkjunum er ætlað að skapa auka verðmæti og ný markaðstækifæri og eru liður í framkvæmd á aðgerð í Byggðaáætlun um stuðning við atvinnurekstur kvenna.
Þátttökurétt hafa konur og fyrirtæki í eigu kvenna (amk 50%) með lögheimili á starfssvæði Byggðastofnunar (ekki í eftirtöldum sveitarfélögum: Hafnarfjarðarkaupstað, Garðabæ, Sveitarfélaginu Álftanesi, Kópavogskaupstað, Seltjarnarneskaupstað, Reykjavíkurborg og Mosfellsbæ).
Skilyrði fyrir þátttöku er að verk/vara verður að vera tilbúin til markaðssetningar erlendis og að framleiðsla verksins/vörunnar fari að hluta til eða að öllu leyti fram á Íslandi.
Við mat á umsóknum verður horft til eftirfarandi þátta: Að verk/vara sé vönduð og samkeppnishæf. Markaðsáætlun sé hniðmiðuð, raunhæf og vel skilgreind. Kostnaðar- og verkáætlun sé trúverðug og vel skilgreind og að möguleg framþróun sé fólgin í verkefninu eða vörunni.
Rýnihópur metur umsóknir og velur verk 10 umsækjenda. Verkin sem rýnihópurinn velur verða til sýnis dagana 18-21.mars 2010. Dómnefnd velur amk. 5 verkanna og fá eigendur þeirra faglegan og fjárhagslegan stuðning við að koma verkinu á markað erlendis. Val dómnefndar verður tilkynnt 21.mars á lokadegi Hönnunarmars 2010.
Umsóknum skal skilað rafrænt fyrir kl. 17.00 mánudaginn 1.febrúar 2010, umsóknareyðublað og leiðbeiningar eru á heimasíðu Byggðastofnunar www.byggdastofnun.is
Nánari upplýsingar veitir Sigríður Elín Þórðardóttir í síma 455-5400 eða í netfangi sigridur@byggdastofnun.is
Mikilvægt er að senda inn vandaða umsókn og er umsækjendum bent á að hægt er að fá ráðgjöf hjá Byggðastofnun, atvinnuþróunarfélögum og Nýsköpunarmiðstöð Íslands.








