Beint á leiðarkerfi vefsins
Atvinnumál kvenna

Bráðum komið 2010 - og hvað þá? - Fréttir

29.12.2009

Bráðum komið 2010 - og hvað þá?

Þá er jólahátíðin um garð gengin og við bíðum spennt eftir áramótunum. Eða hvað?
Er eftirvæntingin spennandi og hlökkum við til að takast á ný og ögrandi verkefni - eða er enn einn kvíðahnúturinn farinn að búa um sig hið innra? Enginn þekkir framtíð sína, ekki einu sinni morgundaginn. Við getum gert okkur ákveðna hugmynd um hvað sé framundan en það getur allt saman kollvarpast á einu stuttu andartaki og án þess að við fáum nokkuð við ráðið. Nú ber svo við að óvissan hér á okkar litla landi er líklega enn meiri í hjörtum og huga margra en oftast áður. Ekki er ólíklegt að flestir sem komnir eru til nokkurs þroska og vitundar bíði fyrsta dags annars mánuðar nýja ársins með all nokkurri óþreyju, ekki vegna þess að þeir eigi von á óvæntum lottóvinningi - heldur til að geta þá hugsanlega, mögulega, ef til vill .... fengið örlítið skýrari mynd af því hvað í ósköpunum gerðist og hvers vegna mál gátu þróast eins og þau gerðust. Það er nú einu sinni svo að það er alltaf svo miklu betra að fá útskýringar á því sem maður skilur ekki. En, hvað svo? Er heillavænlegt fyrir okkur að bíða og bíða - og bíða og sjá hvað verða vill og reyna að gera okkur skynsamlega grein fyrir hvaða áhrif það getur hugsanlega haft á öll okkar framtíðaráform? Er ekki skynsamlegra að hætta að bíða, bretta upp báðar ermarnar og vinna skipulega að því að byggja upp eigin framtíð, okkur sjálfum og fólkinu okkar til sem mestra heilla.  

                Hvernig sérð þú nýja árið fyrir þér? Ýttu nú öllum fréttaflutningi til hliðar og hugsaðu nýja árið út frá þínum eigin draumum um ánægjulega framtíð. Hvernig viltu nýta næsta ár? Viltu breyta einhverju frá því hvernig hlutirnir eru í dag? Það er um að gera að taka ákveðna stefnu, skrifa niður lýsingu á því sem þig langar til að gera á  næsta ári. Hvað viltu? Veistu það ekki - eða finnst þér ekki taka því að gera þér grein fyrir því vegna þess að aðstæður séu þannig að það muni hvort heldur sem er ekki ganga upp? Hafi þessi hugsun læðst að þér þá er aðeins eitt svar; Hættu að hlusta á þessa gömlu tuggu - úthýstu öllum efasemdum úr huga þér og taktu aftur upp þráðinn við að móta framtíðaráætlunina þína til sigurs.  Eins og ég hef komið inn á í fyrri pistlum þá ert þú jú framkvæmdastjórinn í þínu eigin lífi. Framkvæmdastjórar semja viðskiptaáætlanir með það að leiðarljósi að fyrirtækið skili hagnaði í lok ársins. Ef fyrirtækið hefur staðið höllum fæti um nokkurn tíma þá verður það að minnsta kosti kappsmál að vinna fyrirtækið sem mest upp úr skuldafeninu til að ná þá sigri síðar. Við skulum hafa í huga að „skuldafenið" þarf ekki endilega að vera bundið við fjárhaginn, það má jú líka segja að það geti verið á sviði tilfinninga og persónulegra sambanda við okkar nánustu, það fólk sem er okkur kærast. Það getur líka verið gagnvart okkur sjálfum, hvernig við komum fram við okkur sjálf!

                Hvernig gæti viðskiptaáætlunin þín fyrir mikilvægasta „fyrirtækið þitt", líf þitt, litið út fyrir árið 2010? Hvernig eru aðstæður þínar í dag  - og hvernig viltu hafa þær að ári liðnu? Skrifaðu lýsingu á því hvernig þú vilt að hlutirnir hafi breyst. Skrifaðu lýsinguna í nútíð og lýstu aðstæðunum eins og þær hafi nú þegar breyst. Skrifaðu lýsinguna í 1. persónu og notaðu kraftmikil og öflug lýsingarorð til að gera textann bæði skemmtilegri aflestrar og eins til að þú eigir auðveldara en annars með að ímynda þér hvernig þér muni líða þegar þú hefur náð að breyta hlutunum á þennan hátt. Já, ég er að tala um að þú skrifir niður markmið fyrir næsta ár, markmið sem geta breytt lífi þínu til batnaðar.  Fyrir nokkrum dögum hlustaði ég á kennslumyndband á netinu með þekktum árangursfræðingi Bill Bartmann, en hann vinnur mikið með jákvæða sálfræði. Bartmann mælir eindregið með því að við hættum að kalla markmiðin okkar markmið og að við tölum frekar um að við gefum sjálfum okkur ákveðin loforð. Í þessu sambandi vitnar hann í rannsókn sem gerð var á þessu tvennu. Þar sýndi það sig að þeir sem gáfu sjálfum sér loforð frekar en að setja sér markmið, náðu að standa við loforðin mun oftar en fólk náði þeim markmiðum sem það setti sér. Þetta er útskýrt með því að oft leggi fólk gífurlega mikið á sig til að standa við orð sín, og það reynist því þannig auðveldara að halda einbeitingu en þegar fólk setur sér markmið. Þetta þótti mér nokkuð athyglisvert og vel þess virði að fólk prófi sig áfram á þessu sviði.

                Það verður aldrei sagt of oft, að það sem skiptir allra mestu máli fyrir þig er að vita hvað þú vilt.  Ekki festa þig í einhverri flækju sem getur skapast af því að þú ferð að velta þér upp úr því hvort þú getir eða getir ekki gert það sem þig langar til. Ef þú heldur þig innan nokkuð skynsamlegra marka í óskhyggjunni og velur atriði sem skipta þig hreinskilningslega miklu máli, þá er með öllu óþarft að hafa  áhyggjur af því hvernig þú ætlar að fara að því að ná þessu markmiði eða uppfylla þetta loforð. Þú þarft bara að vita hvað þú vilt og síðan að byrja að vinna í málinu af festu og einbeitingu. Það er hinsvegar er mjög mikilvægt að þú gerir þér skýra hugmynd um hvernig þú munir geta gert þér grein fyrir því hvernig þér tekst til. Þú þarf þannig að skilgreina árangurinn sem þú vilt ná. Segjum sem dæmi að eftir eitt ár viljir þú vera fjárhagslega frjáls. Ef svo er þá þarftu að vita hvernig það muni lýsa sér að þú sért fjárhagslega frjáls. Hvaða tölur sýna sig þá í heimabankanum? Hvað getur þú þá leyft þér fyrir þig og þína sem þú getur ekki í dag? Reyndu að lýsa þessum aðstæðum líka út frá tilfinningalegri líðan. Hvernig verður þér innanbrjósts við að sjá svo miklu hagstæðari eigin fjárhagsstöðu. (Mundu að skrifa lýsinguna í 1. persónu og nútíð!)

                Einn mikilvægasti liðurinn í því að ná árangri er að halda að góðri einbeitingu við vinna verkið til fulls, ekki stoppa og gefast upp á miðri leið þó svo að á móti blási um tíma.  Líttu í kringum þig, hverjir gætu hugsanlega aðstoðað þig við að ná þessum árangri? Af hverjum getur þú lært? Hvar getur þú leitað ráða?

                Nú er um að gera að hefjast handa. Láttu hugann reika og leyfðu þér að finna hvað þú vilt. Þegar þú setur þér markmið, eða gefur þér loforð sem þú vilt ekki fyrir nokkurn mun svíkja, eyddu þá ekki  dýrmætum tíma þínum í að reyna að þóknast öðrum.  Þú verður að velja það sem stendur hjarta þínu næst. Persónuleg markmið og loforð verða að vera persónuleg, ekki eitthvað sem aðrir vilja að þú leggir allt þitt í. Þú sem hefur fylgst með pistlunum mínum manst hugsanlega að ég hef lagt áherslu á mikilvægi þess að fólk setji sér markmið á fjórum mikilvægum sviðum; innan fjármála, heilsu, persónulegra samskipta og nýrrar þekkingar. Ef þér finnst það flókið, þá skaltu einfaldlega byrja á því að skrifa niður allt mögulegt sem þér kemur til hugar og er innan þess ramma sem ég minntist á hér að framan.

Þrepin í árangursvinnunni okkar eru því þessi:
1. Þú þarft að ákveða hvað þú vilt!  
2. Skrifaðu niður markmiðin / loforðin þín í 1. prs. eintölu þar sem þú lýsir þeim eins og þau hafi nú þegar orðið að veruleika. (Mundu eftir kröftugu lýsingarorðunum.)
3. Skilgreindu fyrir þér hvernig þú veist að árangur hafi náðst.
4. Gerðu þér grein fyrir því hvernig þér muni líða þegar árangrinum sem þú stefnir að er náð.
5. Lestu lýsinguna yfir sem oftast, allra helst á hverjum degi. Lestu lýsinguna af innlifun og kallaðu fram þá vellíðunartilfinningu sem þú telur að árangurinn kalli fram hjá þér.
6. Á hverjum degi skaltu gera nokkra hluti til að færa þig nær því að ná markmiðinu / uppfylla loforðið.

Leyfðu þér að Blómstra árið 2010. Njóttu þess að vera þú!
Bestu kveðjur
Jóna Björg Sætran, menntunarfræðingur, markþjálfi o. fl.
Námstækni ehf.        http://www.namstaekni.is/     og     http://www.blomstradu.net/


Póstlisti

Hér er hægt að skrá sig á póstlista og fá sendar fréttir af verkefninu. Fylgstu með !!


Speki dagsins

Ef þér finnst þú of lítil til að geta haft áhrif, prófaðu þá að hátta hjá moskítóflugu.
Anita Roddick

Atvinnumál kvenna á facebook
Atvinnumál kvenna á twitter

Stækka og minnka texta

Auðlestrarhamur Stækka letur Minnka letur

English information

Information in english

Danish information

Information pa dansk