Fjölbreyttar viðskiptahugmyndir á Brautargengi - Fréttir
5.1.2010
Fjölbreyttar viðskiptahugmyndir á Brautargengi
Föstudaginn 11. desember útskrifuðust 16 konur á námskeiðinu Brautargengi í Reykjavík en Brautargengi er námskeið fyrir konur með viðskiptahugmyndir á vegum Impru á Nýsköpunarmiðstöð Íslands. Viðskiptahugmyndirnar á námskeiðinu voru afar fjölbreyttar. Helga Rakel Rafnsdóttir fékk hvatningarverðlaun fyrir frábæra og ferska viðskiptahugmynd sína Kung Fu films, sem snýst um að skapa konum sterkari sess í kvikmyndagerð á Íslandi, með áherslu á stutt- og heimildarmyndir undir stjórn kvenleikstjóra. Jóhanna Ingvarsdóttir fékk viðurkenningu fyrir bestu viðskiptaáætlunina um Evrópubrúna, en hún vinnur að því að afla verkefna fyrir íslenska byggingaverktaka á Evrópska efnahagssvæðinu. Jóhanna er komin á fulla ferð við að afla gjaldeyris og vinna verktakabransann út úr kreppunni, sem er þjóðþrifaverk.
Einnig luku tólf konur Brautargengi í Borgarnesi í haust og bætast þær í hóp þeirra hundruða kvenna sem lokið hafa náminu frá byrjun. Brautargengiskonur velta milljörðum og skapa saman þúsundir starfa, þótt flest fyrirtæki þeirra hafi á að skipa fáum starfsmönnum, því safnast þegar saman kemur. Árið 2007 var árangur síðast mældur af náminu og voru þá tæplega milli 50 og 60% þeirra kvenna sem lokið höfðu náminu í eigin rekstri. Í vetur er unnið að næstu mælingu.








