Lífsvefurinn - sjálfsstyrking fyrir konur - Fréttir
11.1.2010
Lífsvefurinn - sjálfsstyrking fyrir konur
Leiðbeinandi er Valgerður H. Bjarnadóttir.
Helstu efnisþættir námskeiðsins eru: sjálfsþekking, sjálfsmynd og samskipti; saga, hlutverk og staða kvenna; heilsa kvenna og tilfinningar; draumar og goðsagnir; fyrirmyndir og fordómar.
Markmiðin eru m.a. að: læra að þekkja og virða sjálfa sig; læra að greina og vinna úr því sem er erfitt og setja sér raunhæf markmið; læra leiðir til skapandi samskipta; styrkja jákvæða kvenímynd/sjálfsmynd sína; og þekkja sögu sína, lífsgildi, lífstilgang, rétt sinn og skyldur.
Lífsvefurinn var upphaflega (1991) ofinn af þeim Valgerði H. Bjarnadóttur og Karólínu Stefánsdóttur, sem báðar eru félagsráðgjafar með mikla reynslu af vinnu með konum. Lagt var af stað með 20 klst námskeið sem enn er haldið reglulega á ýmsum vettvangi. Námsefnið hefur síðan vaxið og þróast eins og eðlilegt er og nú er einnig boðið upp á heildstætt 60 klst. nám yfir lengri tíma. Haustið 2009 hafa tveir kvennahópar verið í þessu lengra námi og vegna fjölda fyrirspurna hefur verið ákveðið að leggja af stað með þriðja hópinn norðan heiða og bjóða einnig upp á 60 klst námið á höfuðborgarsvæðinu. Þá verður byrjað með 20 klst grunnnámskeið og síðan gefst konum tækifæri til að bæta við 40 klst framhaldi.
Grunnurinn í Lífsvefnum er heildarhugsun og hringurinn er nýttur sem grunnform. Byggt er á eigin kvenlægri þekkingu og reynslu, skapandi samtali mæðra þessa námsefnis, auk kenninga og hugmynda annarra kvenna og karla með ólíka menntun og sjónarhorn. Við nýtum okkur visku formæðranna sem enn lifir meðal frumbyggja þessa heims, auk þess sem hún lifir í fornum sögnum, goðsögum og ævintýrum. Þessi viska hefur oftar en ekki verið staðfest á síðari árum af nútímavísindarannsóknum.
Áhersla er lögð á að kynna þátttakendum skapandi lífssýn og ekki síst nýja sýn á sjálfar sig og tengsl sín við rætur, núverandi umhverfi og framtíð. Í gegnum ýmsa spegla úr draumum og menningarsögu, goðsögnum, þjóðsögum og ævintýrum, auk blákalds raunveruleikans, opnast gluggar sem veita skilning á stöðu kvenna og hverrar einstakrar konu og útsýni til nýrra möguleika. Þessi þekking verður að uppistöðu sem konurnar nýta til að vefa ný munstur í sinn lífsvef, skapa nýja sögu, um leið og þær læra að nýta efnið í lífi og starfi með öðrum konum og körlum.
Skipulag
Tími
Námið er byggt svona upp
Nyrðra: 4 klst á tveggja vikna fresti. Byrjað miðvikudaginn 20.janúar, 16:30 - 20:30, og 20 klst lokið 17.mars. í Framhaldi af því verður boðið upp á helgarnámskeið (20 klst) og svo 20 klst í viðbót yfir lengri tíma.
Syðra: Tvisvar sinnum 10 klst tarnir, sú fyrri 5.-6.febrúar og sú seinni 5.-6.mars. Í framhaldi af því verður boðið upp á helgarferð utanbæjar (20 klst) og svo tvisvar 10 klst. tarnir í framhaldi af því.
Dagsetningar á framhaldsnáminu ákveðnar síðar í samráði við þátttakendur.
Verð
25 þúsund fyrir grunnnámskeiðið. 40 þúsund fyrir framhaldsnámskeið. Kostnaður við fæði og uppihald í helgarferð er reiknaður aukalega.
Staðsetning:
AkureyrarAkademían (nyrðra). Staðsetning syðra ákveðin síðar. Helgarferðirnar eru utan þéttbýlis.
Efni og efnistök:
Við munum þætta saman fræðslu og hópavinnu, hugleiðslur og einstaklings- og paraverkefni. Draumar, goðsagnir og ævintýri verða mikið nýtt sem speglar, en einnig dæmisögur úr daglegu lífi og störfum. Nemendur fá heimaverkefni og geta æft sig í að nota efnið í störfum sínum þegar líður á námið. Mikil áhersla verður lögð á samtal þátttakenda og leiðbeinanda.
Innifalið í náminu eru tvö einstaklingssamtöl við leiðbeinanda.
Í ritun er bókin um Lífsvefinn og munu þátttakendur verða eins konar ritrýnendur á þau skrif, fá kaflana sem lesefni jafnóðum og þeir fæðast.
Valgerður H.Bjarnadóttir er félagsráðgjafi að mennt, með BA-gráðu í heildrænum fræðum með áherslu á draumafræði og MA í femínískri trúarheimspeki og menningarsögu með áherslu á norræna goðafræði og gyðjutrú. Hún hefur starfað að málefnum kvenna, kennslu og ráðgjöf í áratugi og hefur fjölþætta reynslu að baki.








