Kynningarfundir þann 29.janúar. - Fréttir
26.1.2010
Kynningarfundir þann 29.janúar.
Kynningarfundir fyrir atvinnulausar konur sem hafa hug á því að sækja um styrki og sækja um þróun eigin viðskiptahugmyndar verða á eftirfarandi stöðum næstkomandi föstudag kl. 9.-11.
Akureyri - Háskólinn á Akureyri, Borgum
Ísafjörður - Fræðslumiðstöð Vestfjarða, Suðurgötu 12, Ísafirði
Höfn á Hornafirði - Þekkingarnet Austurlands, Hafnargötu 27, Höfn
Akranes - Bókasafnið Akranesi
Á fundinum verða styrkir til atvinnumála kvenna kynntir auk þess að vinnumarkaðsúrræðið Þróun eigin viðskiptahugmyndar verður kynnt. Farið verður í kynningu á umsóknum og útfyllingu umsóknareyðublaðs og í lokin verða fulltrúar frá Atvinnuþróunarfélögum og Impru til viðtals og munu kynna sína starfsemi.








