Beint á leiđarkerfi vefsins
Atvinnumál kvenna

Lífsvefurinn - sjálfsstyrkingarnám fyrir konur í Skagafirđi - Fréttir

3.2.2010

Lífsvefurinn - sjálfsstyrkingarnám fyrir konur í Skagafirđi

Lífsvefurinn er nám fyrir konur sem vilja læra að þekkja sjálfar sig betur og ná að vefa hinn margþætta vef lífsins á markvissan hátt í einkalífi og starfi.  Þetta nám hentar afar vel fyrir konur sem í störfum sínum styðja við aðrar konur og/eða vinna að sjálfsstyrkingu annarra. Um 20 tíma grunnnámskeið er að ræða sem hægt er að fylgja eftir með 40 tíma framhaldsnámskeiði.

Ţróun námskeiðsins

Lífsvefurinn var upphaflega (1991) ofinn af þeim Valgerði H. Bjarnadóttur og Karólínu Stefánsdóttur, sem báðar eru félagsráðgjafar með mikla reynslu af vinnu með konum.  Lagt var af stað með 20 klst námskeið sem enn er haldið reglulega á ýmsum vettvangi. Námsefnið hefur síðan vaxið og þróast eins og eðlilegt er og nú er orðið til heildstætt  60 klst. nám, sem skiptist í 20 klst grunn og 40 klst framhald. 

Efnisþættir og markmið

Helstu efnisþættir námskeiðsins eru: sjálfsþekking, sjálfsmynd og samskipti; saga, hlutverk og staða kvenna; heilsa kvenna og tilfinningar; draumar og goðsagnir; fyrirmyndir og fordómar.

Markmiðin eru m.a. að: læra að þekkja og virða sjálfa sig; læra að greina og vinna úr því sem er erfitt og setja sér raunhæf markmið;  læra leiðir til skapandi samskipta;  styrkja jákvæða kvenímynd/sjálfsmynd sína;  og þekkja sögu sína, lífsgildi, lífstilgang, rétt sinn og skyldur.

Heildarhugsun og skapandi lífssýn

Grunnurinn í Lífsvefnum er heildarhugsun og hringurinn er nýttur sem grunnform. Byggt er á eigin kvenlægri þekkingu og reynslu, skapandi samtali mæðra þessa námsefnis, auk kenninga og hugmynda annarra kvenna og karla með ólíka menntun og sjónarhorn. Við nýtum okkur visku formæðranna sem enn lifir meðal frumbyggja þessa heims, auk þess sem hún lifir í draumum okkar og fornum sögnum, goðsögum og ævintýrum. Þessi viska hefur oftar en ekki verið staðfest á síðari árum af nútímavísindarannsóknum.

Áhersla er lögð á að kynna þátttakendum skapandi lífssýn og ekki síst nýja sýn á sjálfar sig og tengsl sín við rætur, núverandi umhverfi og framtíð. Í gegnum ýmsa spegla úr draumum og menningararfi,  auk blákalds raunveruleikans, opnast gluggar sem veita skilning á stöðu kvenna og hverrar einstakrar konu og útsýni til nýrra möguleika. Þessi þekking verður að uppistöðu sem konurnar nýta til að vefa ný munstur í sinn lífsvef, skapa nýja sögu, um leið og þær læra að nýta efnið í lífi og starfi með öðrum konum og körlum. 

Skipulag

Tími

 Fyrri hluti (20 klst): Tvisvar sinnum 10 klst tarnir, sú fyrri 19.- 20.febrúar og sú seinni  19.-20.mars.  Kennt er frá 18 - 22 föstudagana og 10 - 16 laugardagana. 

Seinni hluti (40 klst): Framhaldsnámið samanstendur af helgarferð m/gistingu (20 klst) og svo tvisvar sinnum 10 klst. törnum í framhaldi af því.

Dagsetningar á framhaldsnáminu ákveðnar síðar í samráði við þátttakendur.

Staðsetning:

Staðsetning námskeiðsins í Skagafirði verður auglýst nánar þegar nær dregur.Í helgarferðinni í framhaldsnáminu er gist utan þéttbýlis.

Verð

25 þúsund fyrir grunnnámskeiðið.  40 þúsund fyrir framhaldsnámskeið. Kostnaður við fæði og uppihald í helgarferð er reiknaður aukalega.

Efni og efnistök:

Við þættum saman fræðslu og hópavinnu, hugleiðslur og einstaklings- og paraverkefni.  Draumar, goðsagnir og ævintýri eru mikið nýtt sem speglar, en einnig dæmisögur úr daglegu lífi og störfum. Nemendur fá heimaverkefni og geta æft sig í að nota efnið í störfum sínum þegar líður á framhaldsnámið.  Mikil áhersla er lögð á samtal þátttakenda og leiðbeinanda.  Kaflar úr bókinni um Lífsvefinn (sem er í ritun) er grunnlesefni námskeiðsins, en einnig fá nemendur upplýsingar um viðbótarlesefni að vild.

Innifalið í náminu er einstaklingssamtal við leiðbeinanda, eitt í hvorum hluta námsins.

Skráning í síma 895-3319

Valgerður H.Bjarnadóttir er félagsráðgjafi að mennt, með BA-gráðu í heildrænum fræðum með áherslu á draumafræði og MA í femínískri trúarheimspeki og menningarsögu með áherslu á norræna goðafræði og gyðjutrú. Hún hefur starfað að málefnum kvenna, kennslu og ráðgjöf í áratugi og hefur fjölþætta reynslu að baki.

Póstlisti

Hér er hægt að skrá sig á póstlista og fá sendar fréttir af verkefninu. Fylgstu með !!


Speki dagsins

Ef þér finnst þú of lítil til að geta haft áhrif, prófaðu þá að hátta hjá moskítóflugu.
Anita Roddick

Atvinnumál kvenna á facebook
Atvinnumál kvenna á twitter

Stćkka og minnka texta

Auđlestrarhamur Stćkka letur Minnka letur

English information

Information in english

Danish information

Information pa dansk