Lífsvefurinn - sjálfsstyrkingarnám fyrir konur - Fréttir
4.3.2010
Lífsvefurinn - sjálfsstyrkingarnám fyrir konur
Haldið í Skagafirði, mars - apríl 2010
Leiðbeinandi: Valgerður H. Bjarnadóttir
Lífsvefurinn er nám fyrir konur sem vilja læra að þekkja sjálfar sig betur og ná að vefa hinn margþætta vef lífsins á markvissan hátt í einkalífi og starfi. Þetta nám hentar afar vel fyrir konur sem í störfum sínum styðja við aðrar konur.
Helstu efnisþættir námskeiðsins eru: sjálfsþekking, sjálfsmynd og samskipti; saga, hlutverk og staða kvenna; heilsa kvenna og tilfinningar; draumar og goðsagnir; fyrirmyndir og fordómar.
Markmiðin eru m.a. að: læra að þekkja og virða sjálfa sig; læra að greina og vinna úr því sem er erfitt og setja sér raunhæf markmið; læra leiðir til skapandi samskipta; styrkja jákvæða kvenímynd/sjálfsmynd sína; og þekkja sögu sína, lífsgildi, lífstilgang, rétt sinn og skyldur.
Tími, staðsetning og verð
Grunnnámskeið (20 klst): Tvisvar sinnum 10 klst tarnir, sú fyrri 19.- 20.mars og sú seinni 16.-17.apríl. Kennt verður í Húsi frítímans frá 18 - 22 föstudagana og 10 - 16 laugardagana.
Verð er kr. 25 þúsund fyrir grunnnámskeiðið. ATH! flest stéttarfélög og sumir vinnuveitendur styrkja námskeiðið.
Framhald
Vanadís býður upp á 40 klst framhaldsnám fyrir konur sem vilja dýpka sig enn frekar í Lífsvefnum.
Skráning á nánari upplýsingar í vanadis@vanadis.is eða í síma 895 3319.
Einnig eru frekari upplýsingar um námskeið Vanadísar á www.vanadis.is








