Beint á leiðarkerfi vefsins
Atvinnumál kvenna

Úthlutun styrkja til atvinnumála kvenna - Fréttir

23.3.2010

Úthlutun styrkja til atvinnumála kvenna

Nú hefur ráðgjafanefnd lokið mati á umsóknum styrkja til atvinnumála kvenna og úthlutun þeirra á næsta leiti. Þann 26.mars næstkomandi mun Árni Páll Árnason, félags- og tryggingamálaráðherra, úthluta styrkjunum í Hugmyndahúsi háskólanna að Grandagarði 2.

55 styrkjum verður úthlutað að þessu sinni til fjölbreytta verkefna vítt og breitt um landið en lista yfir verkefnin má sjá hér

Að þessu sinni voru 30.milljónir til úthlutunar og var sérstakur markhópur að þessu sinni atvinnulausar konur með viðskiptahugmynd.
Athöfnin fer fram í Hugmyndahúsi háskólanna og hefst kl. 13.00 með ávarpi Félags- og tryggingamálaráðherra og úthlutun styrkja. Að því loknu mun Ingibjörg Gréta Guðmundsdóttir kynna Hugmyndahús háskólanna.  Þá mun Rúna Magnúsdóttir, framkvæmdastjóri tengslasíðunnar www.connected-women.com taka við og kynna möguleika tengslaneta og hrista hópinn saman. 

Athöfninni lýkur kl. 16.00 með veitingum í boði Samtaka atvinnulífsins.

Kl. 16.00 verður húsið opnað fyrir gesti og gangandi en þá hefst sýning styrkþega frá árinu 2008 og 2009 þar sem 25 styrkhafar munu kynna verkefni og fyrirtæki sín.  

Kynningin stendur frá kl. 16.00-18.00 og hvetjum við alla til að koma í heimsókn.


Póstlisti

Hér er hægt að skrá sig á póstlista og fá sendar fréttir af verkefninu. Fylgstu með !!


Speki dagsins

Ef þér finnst þú of lítil til að geta haft áhrif, prófaðu þá að hátta hjá moskítóflugu.
Anita Roddick

Atvinnumál kvenna á facebook
Atvinnumál kvenna á twitter

Stækka og minnka texta

Auðlestrarhamur Stækka letur Minnka letur

English information

Information in english

Danish information

Information pa dansk