Vanadís - rætur okkar, draumar og auður - Fréttir
27.4.2010
Vanadís - rætur okkar, draumar og auður
drauma og goðsagna þann 29.apríl kl.20 - 22 í Húsi frítímans, Sauðárkróki.
Líf okkar er ævintýraferð, þar sem við spinnum örlagaþræðina og vefum lífsvefinn, sjálfsmynd okkar, samskipti og stöðu, í tengslum við umhverfið, í samspili sögu og framtíðardrauma. Þrátt fyrir allar þær ytri breytingar sem hafa orðið á lífi okkar og umhverfi í gegnum aldirnar hefur manneskjan í grunninn ætíð verið sú sama og tilfinningar okkar, tengsl og draumar náskyld þeim sem formæður okkar og -feður áttu sér fyrir þúsundum ára.
Í þessari spunaferð mun Valgerður Bjarnadóttir ferðast um heima menningarsögu, drauma og goðsagna og slást í för með Völvunni og elsta þekkta skáldi heims, hofgyðjunni Enhedúönnu. Hún mun líta við hjá gyðjunum Inönnu, Maríu og Freyju, álfkonum og tröllkonum.
Við munum rýna í drauma næturinnar og fá örlitla innsýn í það hvernig við getum nýtt þennan auð sem býr í rótunum til að styrkja lífsvefinn, efla sjálfsmynd okkar og bæta tengsl og samskipti.
Örnámskeiðið er öllum opið
Þátttökugjald kr. 1000








