Beint á leiðarkerfi vefsins
Atvinnumál kvenna

Menningar og minningasjóður kvenna auglýsir eftir styrkumsóknum - Fréttir

12.5.2010

Menningar og minningasjóður kvenna auglýsir eftir styrkumsóknum

Að þessu sinni er sjóðurinn opinn fyrir umsóknum frá konum sem eru í, eða hyggja á nám á háskólastigi listgreinum á komandi skólaári. Um getur verið að ræða nám hérlendis eða erlendis.

Styrkupphæð árið 2010 er ein milljón króna og áskilur stjórn sjóðsins sér rétt til að ákveða fjölda styrkþega. Styrkur verður greiddur út þegar staðfesting á skólavist liggur fyrir.

Með umsókn skulu fylgja eftirfarandi gögn:

*Staðfesting um skólavist og námsframvindu ef nám er hafið.
*Skattaskýrsla vegna tekna árið 2009
*Upplýsingar um aðra styrki vegna námsins ef um þá er að ræða

Umsóknareyðublöð má nálgast á heimasíðu KRFÍ. Í umsókn skulu koma fram helstu upplýsingar um umsækjanda og aðstæður hans, hvaða skóla sótt er um og hvaða nám umsækjandi stundar eða hyggst stunda.

Umsóknarfrestur er til 15. maí nk. Tilkynnt verður um styrkþega á kvenréttindadaginn 19. júní. Allar nánari upplýsingar á skrifstofu KRFÍ og á netfanginu krfi@krfi.is

Íbúð Menningar- og minningasjóðs

Ennfremur auglýsir sjóðurinn til leigu íbúð sjóðsins. Um er að ræða snyrtilega einstaklingsíbúð í Hraunbæ, ca. 40 m2. Íbúðin leigist til konu í háskólanámi frá og með 1. sept. nk. Leiguupphæð er kr. 50.000 á mánuði og leigist íbúðin til eins árs í senn.

Með umsókn skulu fylgja upplýsingar um nám og námsframvindu, auk persónuupplýsinga. Umsóknum skal skilað til Menningar- og minningarsjóðs kvenna, Hallveigarstöðum við Túngötu 14, 101 Reykjavík, fyrir 15. maí nk.


Póstlisti

Hér er hægt að skrá sig á póstlista og fá sendar fréttir af verkefninu. Fylgstu með !!


Speki dagsins

Ef þér finnst þú of lítil til að geta haft áhrif, prófaðu þá að hátta hjá moskítóflugu.
Anita Roddick

Atvinnumál kvenna á facebook
Atvinnumál kvenna á twitter

Stækka og minnka texta

Auðlestrarhamur Stækka letur Minnka letur

English information

Information in english

Danish information

Information pa dansk