Beint á leiđarkerfi vefsins
Atvinnumál kvenna

TENGSLANET V - VÖLD TIL KVENNA - Fréttir

21.5.2010

TENGSLANET V - VÖLD TIL KVENNA

 

 SINNASKIPTI, SAMSKIPTI & HUGREKKI

Bandaríski metsölurithöfundurinn Barbara Ehrenreich verður aðalfyrirlesari á Tengslaneti V- Völd til kvenna ráðstefnunni sem haldin er 27 - 28 maí næstkomandi. Ehrenreich þykir einn róttækasti samfélagsgagnrýnandi sem nú er á ritvellinum. Bók hennar Nickel and Dimed var í ár valin ein af tíu bestu bókum síðasta áratugar á sviði rannsóknarblaðamennsku af blaðamannstofnun New York háskóla.

Barbara Ehrenreich er þekkt fyrir baráttu sína fyrir réttindum kvenna. Hún skrifaði um árabil í MS tímarit Gloriu Steinem; er doktor í líffræði en hefur helgað líf sitt ritstörfum. Hún er höfundur margra bóka og greina; er dálkahöfundur í stórblaðinu New York Times, vinsæll gestur í sjónvarpsþáttum; þykir eitursnjall penni, frábær fyrirlesari og Lundúnablaðið Times hefur kalla hana Jonathan Swift samtímans vegna skarprar sýnar hennar á öfgar og óréttlæti. Þegar hún skrifaði Nickel and Dimed gerðist hún sjálf gengilbeina til að kynnast af eigin raun kjörum þeirra sem komast ekki af í Bandaríkjunum. Hún er sjálf hámenntuð en sagði að láglaunastörf ætluð þeim sem enga færni hafa væru í raun störf sem krefðust oft mikillar einbeitingar, úthalds og þess að fólk sé fljótt að hugsa. Hún segir að þessi láglaunastörf séu ekki eingöngu vanmetin heldur einnig miklu erfiðari um margt auk þess sem þeir sem þeim gegni séu oft að fórna miklu. Þá bendir hún á hvernig atvinnurekendur notfæri sér iðulega eymd þessa fólks. Í nýjustu bók sinni Brigthsided sem vakið hefur mikla athygli gagnrýnir hún „jákvæðni-iðnaðinn" sem gengur út á að láta fólk meðtaka hlutskipti sitt eins og brosandi vélmenni í stað þess að vera raunsæir, gagnrýnir borgarar.

Yfirskrift tengslanetsins í ár er: SINNASKIPTI, SAMSKIPTI & HUGREKKI. Annar aðalfyrirlesara nú er Dr. Sigríður Benediktsdóttir, einn höfunda rannsóknarskýrslunnar, en hún mun leggja út af þema ráðstefnunnar um hugrekki í erindi sínu um aðdraganda og eftirmála hrunsins. Um 30 aðrar konur eru með framsögur á ýmsum sviðum.

Tengslanetsráðstefnan er fjölsóttasta og vinsælasta ráðstefna sem haldin er í íslensku athafnalífi. Dr. Herdís Þorgeirsdóttir prófessor er stofnandi og skipuleggjandi ráðstefnunnar sem var fyrst haldin 2004. Árið 2008 sló ráðstefnan aðsóknarmet en þá sóttu hana 500 konur.  Dagskrá ráðstefnunnar er á heimasíðu Bifrastar http://www.bifrost.is/ Þar er einnig hægt að skrá sig og fá upplýsingar um gistingu.

Ráðstefnan hefst með göngu á Grábrók á fimmtudagskvöldinu með þátttöku frambjóðenda allra flokka í sveitarstjórnarkosningunum.

Dagskrá er hér:

http://www.bifrost.is/pages/radstefnur/tengslanet-v/dagskra/

Við vekjum athygli á að unnt er að skrá sig nú á heimasíðu Bifrastar þar sem einnig er að finna upplýsingar um gistingu í nágrenninu (þ.á.m. eru BSBR sumarbústaðir leigðir út á mjög hagstæðu verði).

Gisting:

http://www.bifrost.is/pages/radstefnur/tengslanet-v/gisting-i-nagrenni-bifrastar/

Skráning er á heimasíðu Bifrastar:

http://www.bifrost.is/pages/radstefnur/tengslanet-v/tengslanet-v-vold-til-kvenna/

Hlökkum til að sjá ykkur!


Póstlisti

Hér er hægt að skrá sig á póstlista og fá sendar fréttir af verkefninu. Fylgstu með !!


Speki dagsins

Ef þér finnst þú of lítil til að geta haft áhrif, prófaðu þá að hátta hjá moskítóflugu.
Anita Roddick

Atvinnumál kvenna á facebook
Atvinnumál kvenna á twitter

Stćkka og minnka texta

Auđlestrarhamur Stćkka letur Minnka letur

English information

Information in english

Danish information

Information pa dansk