Beint á leiðarkerfi vefsins
Atvinnumál kvenna

Kvennahlaupið 2010 - Fréttir

18.6.2010

Kvennahlaupið 2010

21. Sjóvá Kvennahlaup ÍSÍ fer fram á sjálfan Kvenréttindadaginn 19. júní.  Það er því við hæfi að tileinka hlaupið í ár krafti og elju íslenskra kvenfélaga.   Með samstöðu, áræðni og dugnaði hafa kvenfélagskonur á Íslandi hrint í framkvæmd fjölmörgum  framfara- og velferðamálum fyrir samfélagið.  Fyrir 80 árum stofnuðu þær Kvenfélagasamband Íslands,  KÍ, sem sameiningar og samstafsvettvang kvenfélaganna í landinu. Undir merkjum KÍ starfa þúsundir kvenna á öllum aldri og mynda þannig keðju góðra verka og vináttu.

Kvenfélagasamband Íslands, KÍ, var stofnað þann 1. febrúar 1930.
Markmiðið með stofnun Kvenfélagasambandsins var að sameina kvenfélög landsins í eina heild. Innan KÍ eru 18 héraðs- og svæðasambönd með um 200 kvenfélög innanborðs.   Fyrir utan fjölmörg samfélagsleg og mannúðarverkefni hefur Kvenfélagasambandið gefið út tímaritið Húsfreyjuna frá árinu 1949.  Tímaritið er þar með eitt elsta útgefna tímarit landsins.  KÍ rekur einnig Leiðbeiningarstöð heimilanna þar sem fólk getur leitað ráða í sambandi við allt mögulegt sem snertir rekstur heimilis og fjölskyldu.   Samfélag okkar væri snauðara ef Kvenfélaganna nyti ekki við.  Við hvetjum konur á öllum aldri til að kynna sér og taka þátt í gefandi starfi félaganna.

(Tekið af heimasíðu Sjóvár)


Póstlisti

Hér er hægt að skrá sig á póstlista og fá sendar fréttir af verkefninu. Fylgstu með !!


Speki dagsins

Ef þér finnst þú of lítil til að geta haft áhrif, prófaðu þá að hátta hjá moskítóflugu.
Anita Roddick

Atvinnumál kvenna á facebook
Atvinnumál kvenna á twitter

Stækka og minnka texta

Auðlestrarhamur Stækka letur Minnka letur

English information

Information in english

Danish information

Information pa dansk