Vinnur með fólk og fyrir fólk - Viðtöl
22.9.2010
Vinnur með fólk og fyrir fólk
það markmið að veita fræðslu um forvarnir til fyrirtækja og stofnana. Ragnheiður er ein af þeim sem fékk styrk síðastliðið vor til að vinna að þróun verkefnisins. Hér fáum við að vita meira um konuna og verkefnið.Segðu aðeins frá sjálfri þér - hver er konan?
„Ragnheiður Davíðsdóttir, 56 ára, gift í 37 ár og á tvö uppkomna syni og fjögur barnabörn. Undanfarin 15 ár starfaði ég sem forvarnafulltrúi hjá VÍS en áður var ég lögreglumaður og ritstjóri og blaðamaður um margra ára skeið. Ég er með menntun í Hagnýtri fjölmiðlun og íslensku frá HÍ.
Til hvaða verkefnis fékkst þú styrk?
„Ég fékk styrk til þróunar- og markaðssetningar fyrirtækis míns, Tjónavarnir. Ætlunin er að bjóða stórum fyrirtækjum og stofnunum upp á fræðslu fyrir starfsfólk um alhliða tjónvarnir heimilisins, þ.e. varnir gegn vatnstjónum, bruna, innbrotum og þjófnuðum og slysavörnum utan húss sem innan. Þá er einnig ætlunin að bjóða grunn- og framhaldsskólum, félagasamtökum og fleirum upp á sérhæfða fyrirlestra á sviði tjónvarna og má þar nefna félögum sumarhúsaeigenda og húsbíla- og hjólhýsaeigenda."
Hvernig fékkstu hugmyndina að verkefninu þínu?
„Mér var sagt upp starfi hjá VÍS vegna ágreinings um stefnu í forvarnamálum. Í starfi mínu hjá VÍS áttaði ég mig á þörfinni fyrir slíka fræðslu þegar ég mætti á vegum fyrirtækisins með brunavarnafræðslu í leikskóla og fann áhuga starfsfólksins á alhliða tjónavörnum heimilisins. Ég skynjaði einnig þennan áhuga þegar ég kom fram í fjölmiðlum og fjallaði um tjónavarnir heimilisins en þá fékk ég jafnan margar fyrirspurnir í kjölfarið."
Hvað veitir þér innblástur?
„Einlægur áhugi minn á slysa- og tjónavörnum. Ég fékk þennan áhuga þegar ég starfaði sem lögreglumaður í slysarannsóknardeild og eftir allan þennan tíma hjá VÍS sá ég hvar „eldarnir brenna heitast" og þörfina á að byrgja brunninn áður en barnið dettur í hann."
Hvernig gekk þér að koma hugmyndinni áfram?
„Ég byrjaði á að sækja um styrk til þróunar- og markaðssetningar og jákvæðar undirtektir Atvinnumála kvenna efldi bjartsýni mína. Ég fékk einnig ákaflega jákvæð viðbrögð við hugmyndinni þegar ég viðraði hana við aðila sem ég treysti auk þess sem ýmis fyrirtæki og skólar hafa óskað eftir þjónustu minni eftir að ég hætti sem forvarnafulltrúi VÍS; þjónustu á sviði slysa- og tjónavarna sem þeir voru tilbúnir til að greiða fyrir."
Hvað er skemmtilegast ?
„Að undirbúa og markaðssetja sjálfa sig er bæði skemmtilegt og erfitt. Ég er að vísu svo lánsöm að hafa skapað mér nafn á sviði forvarna og það er ákaflega skemmtilegt að fá jákvæð viðbrögð. En líklega er skemmtilegast að vinna við eitthvað sem gerir gagn; þ.e. í mínu tilfelli að koma í veg fyrir slys og tjón. Það er mjög gefandi og skemmtilegt."
Hvað er erfiðast?
„Mér finnst erfiðast að standa ein í þessari baráttu. Nú þarf ég alfarið að stóla á sjálfa mig í einu og öllu. Ég er fyrirtækið mitt og stend því og fell með því. Að vísu ætti það ekki að vera erfiðara en þegar ég var hjá VÍS, því nafn mitt og fyrirtækisins var nefnt í sömu andrá. En nú þarf ég sjálf að fjármagna þetta fyrirtæki og það veldur mér smá áhyggjum að standa undir þeim væntingum sem styrkveitandinn gerir til mín. En ég er bjartsýn."
Hvað hvetur þig áfram ?
„Það er ástríðan fyrir því sem ég er að gera. Ég er mjög ákveðin þegar ég ætla mér eitthvað og þá sérstaklega þegar atvinnan er líka áhugamál. Ég vil vinna með fólki og fyrir fólk og hugsunin um að ég sé að koma í veg fyrir slys eða tjón hvetur mig áfram auk hvatningar frá vinum mínum og vandamönnum sem hafa á mér mikla trú. „
Hvað er framundan hjá þér um þessar mundir
„Ég er núna að markaðssetja fyrirtækið mitt, láta framleiða heimasíðu og annað markaðsefni og koma þessari þjónustu á framfæri við atvinnurekendur. Það er heilmikil vinna og eftirfylgni. Nú er ég að leggja lokahönd á kennsluefnið sem ég leitast við að hafa á mannamáli og skemmtilegt um leið og það er fræðandi. Það þýðir ekki að bjóða fólki upp á leiðinlega fræðslu."
Eitthvað að lokum?
„Ég er bjartsýn og full af áhuga og vona að mér verði vel tekið með fyriræki mitt, Tjónavarnir, meðal atvinnurekenda. Þetta er frumraun mín á sviði eigin atvinnurekstrar og því afar spennandi."








