Spennandi tímar framundan - Viđtöl
14.10.2010
Spennandi tímar framundan
blásturshljóðfærum og er staðsett á Höfn í Hornafirði. Hugmyndina á Katrín Birna Þráinsdóttir, tónlistarkennari með meiru og hér á eftir fáum við að vita meira um fyrirtækið og stofnandann.
Hver er Katrín Birna?
"Ég er fædd og uppalin á Hornafirði, sveitastelpa með sjómannsblóð í æðunum. Menntaður lyfjatæknir og starfsreynsla mín er fjölbreytt, helst er að nefna vinnu í apóteki, háseti á sjó og tónlistarkennari við Tónskóla A-Skaftafellssýslu frá árinu 2003 þar sem ég kenni á tréblásturshljóðfæri og hef jafnframt sinnt hljóðfæraviðgerðum samhliða kennslu undanfarin þrjú ár.
Ég hef fengist við ýmiss konar handverk gegnum tíðina, sköpunargleðin fékk alltaf að njóta sín í uppvextinum sem var mér gott veganesti. Mest hef ég þó unnið með leður, steina og hreindýrahorn, en einnig gert við reiðtygi undanfarin 16 ár".
Hvernig kom hugmyndin að fyrirtækinu?
"Grunnhugmyndin að BjarmaBergi hefur fylgt mér hátt í 20 ár, einstakir hlutar þess hafa verið í þróun frá þeim tíma á meðan aðrir eru nýrri. Sem dæmi má nefna að í starfi mínu sem tónlistarkennari þá kom upp sú staða að ekki fékkst gert við biluð hljóðfæri, sem er mjög slæmt. Árið 2008 byrjaði ég því nám í blásturshljóðfæraviðgerðum með því að fara til Wales, en hef haldið náminu áfram við bandarískan skóla gegnum fjarfundabúnað, sem einnig sérhæfir sig í blásturshljóðfæraviðgerðum CIOMIT (Colorado Institute Of Musical Instrument Technology). Ætlunin er að halda því námi áfram núna í vetur og byggja styrkari stoðir undir þann grunn sem BjarmaBerg stendur á, sem er hljóðfæraviðgerðir".
Hvernig hefur gengið að koma fyrirtækinu á laggirnar?
"Frá þeim tímapunkti sem ég ákvað að gera gera alvöru úr því að stofna eigið verkstæði hefur allt gengið upp. Fjármögnun hefur gengið mjög vel og verkefni hafa verið næg. Það hafa allir verið jákvæðir og hvetjandi, hvort sem um ræðir foreldra, bankastjóra, viðskiptavini, samstarfsfólk eða vinir".
Til hvaða verkþátta fékkst þú styrk?
"Styrkurinn er ætlaður til að vinna markaðsefni s.s. heimasíðu og þróa þjónustuna sem ég býð upp á og er mjög mikilvægur til að komast yfir fyrstu hjallana í rekstrinum.
Vandað markaðsefni er í mínum huga ekki síður nauðsynlegt en vönduð vinnubrögð í þeim viðgerðum sem ég vinn að og það er ljóst að einhversstaðar verður að draga línuna sem skilur á milli verksviðs fagaðila og frumkvöðuls".
Hvað er erfiðast og skemmtilegast?
"Þegar ég er með erfiðar viðgerðir þá er gott að geta verið með tvö verk í gangi á sama tíma því oft nægir að líta upp úr erfiðleikunum í smá stund og koma svo fersk inn aftur. Allar viðgerðirnar eiga það sameiginlegt að byggja á nákvæmni og útsjónarsemi, að finna vandamálið og leysa það. Mér finnst bæði gefandi og hvetjandi að skila af mér vel unnu verki.
Ég held að einsemdin sé erfiðust, bæði fagleg einangrun og frá samfélaginu, eini faglegi félagsskapurinn er í gegnum tölvu eða síma. Sá félagsskapur er þó ómetanlegur og mikil hvatning og opin vinnustofa er m.a. hugsuð til að einangrast ekki félagslega".
Hvað er framundan hjá þér?
"Framundan eru spennandi tímar. Ég starfa enn sem tónlistarkennari og nú tekur nýtt skólaár við bæði í tónskólanum og í fjarnáminu, vinna við markaðsefni er að fara á fullt og einnig er ég að víkka þjónustusvið BjarmaBergs næstu daga þar sem við bætast fata- og skóviðgerðir auk grófari saumaskapar, t.d. segl og tjöld. Með þessari útrás bætast við tveir starfsmenn í hlutastörfum, einn í bókhald og annar sem sér um "saumadeildina" mitt sérsvið verður áfram hljóðfæra-, hjóla-, reiðtygja- og nú skóviðgerðir. Bæði hljóðfæra- og hjólaviðgerðir eru árstíðabundnar og með þessari viðbót tel ég grunninn undir BjarmaBerg enn styrkari en áður og betur til þess fallinn að skapa trausta atvinnu á ársgrundvelli".
Katrín Birna á vinnustofu sinni á Höfn. Myndina tók Anna María hjá Portfolio.
Hornafirði








