Lét drauminn verđa ađ veruleika - Viđtöl
12.11.2010
Lét drauminn verđa ađ veruleika
KOLKU byggist á fræðslu, ráðgjöf og miðlun. Markmið KOLKU er að veita víðtæka sérfræðiráðgjöf á sviði kolefnismála og viðskipta á kolefnismörkuðum. Framkvæmdastjóri og hugmyndafræðingur Kolku er Eyrún Guðjónsdóttir og hér á eftir forvitnumst við um konuna á bak við hugmyndina og fyrirtækið sjálft en verkefnið hlaut styrk frá Atvinnumálum kvenna síðastliðið vor.
Segðu aðeins frá sjálfri þér - hver er konan?
Ég er fædd og uppalin á Akranesi og er því stolt Skagamær! Ég er mjög félagslynd og líður best þegar ég hef nóg fyrir stafni enda hef ég alla tíð haft nóg á minni könnu. Ég æfði sund fram á unglingsárin, og þjálfaði og kenndi svo sund í framhaldinu. Tónlist hefur skipað stóran sess í mínu lífi en ég var í Tónlistarskóla Akraness frá 6 til 20 ára aldurs þar sem ég lærði á blokkflautu, altflautu og lengst af þverflautu ásamt því að vera í lúðrasveit. Helstu áhugamál mín eru útivist oglíkamsrækt af ýmsu tagi.
Ég er með Bsc gráðu í viðskiptalögfræði og Msc gráðu í alþjóðafjármálum og bankstarfsemi. Áður starfaði ég í 6 ár hjá Íslandsbanka og forverum hans, síðast sem lánastjóri fyrirtækja. Þar á undan á Fjárhagssviði Landspítalans Háskólasjúkrahúsi.
Til hvaða verkefnis fékkst þú styrk?
Ég hlaut launastyrk til markaðssetningar á fyrirtæki mínu KOLKU - kolefnisviðskipti&ráðgjöf
Hvernig fékkstu hugmyndina að verkefninu þínu?
Upphafið að því að ég fór að skoða kolefnismarkaði, loftlagsmálin og annað því tengdu var að ég skrifaði Msc verkefni mitt um kolefnismarkaði, en verkefnið ber heitið ,,Viðskipti til varnar náttúru - tækifæri fjármálafyrirtækja á kolefnismörkuðum". Þetta efni vakti sérstakan áhuga hjá mér og mér leið eins og ég hefði fundið mína hillu ef svo má segja og langaði að sérhæfa mig sérstaklega á þessu sviði. Ég var þá bankastarfsmaður og hélt áfram að þróa hugmynd mína meðfram starfi og varð KOLKA svo til í framhaldinu. Ég ákvað svo að stíga skrefið til fulls með KOLKU og sagði upp starfi mínu hjá bankanum og gef mig nú alla í að þróa og efla fyrirtækið.
Hvað veitir þér innblástur?
Útivist og góð hreyfing er það sem hreinsar huga minn og þá fæðast margar hugmyndir og á sama tíma næ ég að hlaða batteríin.
Hvernig gekk þér að koma hugmyndinni áfram?
Ég hef upplifað jákvæðar undirtektir hjá þeim aðilum sem ég hef kynnt KOLKU fyrir og það sem fyrirtækið hefur fram að færa. Um er að ræða þjónustu, ráðgjöf og viðskipti sem ekki hefur áður verið í boði á Íslandi því hefur það verið mikil áskorun að kynna KOLKU fyrir bæði stjórnvöldum og fyrirtækjum sem hafa hagsmuna að gæta hvað þessi málefni varðar.
Árið 2013 skipar stórt hlutverk í viðskiptaplönum KOLKU en þá má Ísland hefja viðskipti með kolefnisheimildir, á sama tíma mun ný bókun væntanlega taka við, þar sem Kyoto bókunin fellur úr gildi í árslok 2012, ný bókun mun meðal annars fela í sér þrengri takmarkanir á losun gróðurhúsaloftegunda. Það má því ætla að hjól KOLKU muni snúast hraðar með hverjum mánuðinum þar sem mikilvægt er að bæði stjórnvöld og fyrirtæki undirbúi sig best fyrir næsta tímabil
Hvað er skemmtilegast ?
Ţað skemmtilegasta við að vinna við KOLKU er að upplifa og læra eitthvað nýtt á hverjum einasta degi, en hverjum degi fylgir áskorun. Slíkt umhverfi á mjög vel við mig.
Hvað hvetur þig áfram ?
Árangur er minn helsti hvati. Ég hef frá því ég var unglingur sett mér bæði langtíma og skammtíma markmið. Markmiðasetning finnt mér vera mér mjög mikilvæg til að ná árangri á ýmsum sviðum í lífinu. Amma mín sagði alltaf ,,það er ekki gaman af hlutunum nema maður geri þá vel" en þetta hef ég reynt að tileinka mér almennt í lífinu.
Hvað er framundan hjá þér um þessar mundir?
KOLKA gaf nýverið út mjög áhugaverða og fræðandi skýrslu sem ber heitið ,,Ísland í nýju lofti" sem fjallar sérstaklega um kolefnismarkaðinn og Ísland. Þessa dagana hef ég verið að kynna bæði KOLKU og skýrsluna fyrir fyrirtækjum og stofnunum og mun það verkefni halda áfram samhliða því að styrkja og efla KOLKU.
Ţess má geta að KOLKA gefur út markaðsfréttir sem fjalla um það sem er að gerast hverju sinni í kolefnistengdum málefnun, svo sem fréttir, staða, spár og greiningar af;
- kolefnismörkuðum
- alþjóðlegum loftlagsamningum
- upplýsingar eða umræður stjórnvalda
- og ýmsum öðrum tengdum málefnum
Heimasíðan okkar er http://www.kolka.is/ og þar má finna nánari upplýsingar um fyrirtækið og starfsemi þess.
Eitthvað að lokum?
Atvinnumál kvenna er afar mikilvægur sjóður við að efla og hvetja konur á Íslandi til að fara af stað með sínar viðskiptahugmyndir og er ég virkilega þakklát fyrir þann góða styrk sem KOLKA hlaut sem felur bæði í sér fjárhagslegan stuðning og ekki síður viðurkenningu á þeirri hugmynd sem liggur að baki KOLKU sem er mér hvatning til gera enn betur !
Til hvatningar við kynsystur mínar sem eru með viðskiptahugmynd vil ég segja „If you can DREAM it, you can DO it"








