Elskar tangó - Viđtöl
24.11.2010
Elskar tangó
er Laura tangó dansari og hefur tekið þátt í tangó hátíðum víða um heim auk þess sem hún dansar á Íslandi. Þannig tengir hún viðskiptahugmyndina við þetta skemmtilega áhugamál. Okkur langaði að forvitnast meira um konuna og þesssa sérstöku hugmynd.
Segðu aðeins frá sjálfri þér - hver er konan?
Ég er fædd og uppalin í Bandaríkjunum, útskrifaðist í listfræði frá Berkeley háskóla í Kaliforníu áður en ég ákvað að fara til Íslands í ævintýraferð en það var fyrir 22 árum síðan. Síðan þá hef ég unnið sem grafískur hönnuður, vefhönnuður, forritari, ljósmyndari og hef einnig tekið þátt í listsýningum, bæði ein og í hóp. Ég bý með 17 ára dóttur minni í 101 Reykjavík.
Til hvaða verkefnis fékkst þú styrk?
Verkefni mitt kallast Knús Design - föt fyrir nútíma tangó dansara. Hugmyndin er að hanna og framleiða föt fyrir tangó dansara og selja þau í gegnum heimasíðu en einnig á dans hátíðum erlendis. Áherslan er á þægindi og stíl og að nota umhverfisvæn efni.
Hvernig fékkstu hugmyndina að verkefninu þínu?
Sjálf dansa ég tangó hér heima og hef einnig farið erlendis á hátíðir og tangó maraþon. Ég átti erfitt með að finna föt við hæfi í venjulegum búðum og þau föt sem ég fann voru annaðhvort of fín eða hefðbundin og ég fann ekki það sem mig langaði til að klæðast.
Hvað veitir þér innblástur?
Innblásturinn kemur aðallega frá dansinum sjálfum, það sem virkar vel og lítur vel út á dansgólfinu. Ég fæ líka hugmyndir þegar ég fer erlendis á hátíðir og skoða klæðnað fólks sem er að dansa.
Hvernig gekk þér að koma hugmyndinni áfram?
Verkefnið hefur gengið hægt en bítandi og ég held að það sé aðallega vegna þess að ég er ekki fatahönnuður svo ég þarf að treysta á aðra. Ferilinn að koma hugmyndum mínum til hönnuðarins tekur kannski aðeins lengri tíma vegna þess. Við þurfum oft að prufa okkur áfram og breyta. Ég komst að því að ég þurfti að einfalda markmiðin og byrja með færri eintök. Ef ég á að vera raunsæ þá sé ég fram á að þurfa að framfleyta mér á annan hátt á meðan ég er að þróa hugmyndina mína.
Hvað er skemmtilegast ?
Ţað er frábært að sjá fyrstu eintökin verða að veruleika og prófa þau á fólki. Mér finnst líka gaman að fá ný efni til að skoða. Einnig verður gaman að taka myndir af fatnaðinum og verður skemmtilegt verkefni að kynna þetta fyrir fólki erlendis.
Hvað er erfiðast?
Erfiðast er líklegast að finna hentug efni sem bæði eru umhverfisvæn og henta hönnuninni. Þar sem fyrirtækið er lítið þá þarf ég að einskorða mig við smærri dreifingaraðila til að byrja með. Ég hef líka átt í erfiðleikum með viðskiptahliðina. Ég hef lært af mistökunum og til dæmis það að maður á ekki að stofna fyrirtæki fyrr en allt er tilbúið og hægt að framleiða vöru til að selja. Um leið og maður stofnar fyrirtæki byrjar ríkið að biðja mann um skattpeningana ! Maður er alltaf að lærar eitthvað nýtt.
Hvað hvetur þig áfram ?
Ástin á tangó dansinum er það sem hvetur mig áfram. Það er ekkert leiðinlegt að fara á tangó hátíðir og hitta aðra dansara ! Ég kalla þetta rannsóknir og þróun.
Hvað er framundan hjá þér um þessar mundir?
Ţegar ég hef lokið við að gera prufur af fatnaðinum er næsta skref að taka myndir og ljúka við gerð heimasíðunnar. Síðan þarf ég að koma mér út á hátíðir til að kynna heiminum mína hönnun!
Eitthvað að lokum?
Ég held að lykillinn að velgengni sé að skapa sér fyrirtæki í kringum það sem þú hefur ámægju af að gera og það sem er þín ástríða. Þannig mun það verða meira eins og áhugamál frekar en vinna og það er það sem hvetur mann áfram.
.








