Beint á leiðarkerfi vefsins
Atvinnumál kvenna

Tinktúrur úr íslenskum jurtum - Viðtöl

24.1.2011

Tinktúrur úr íslenskum jurtum

Anna Rósa grasalæknir er einn styrkhafa atvinnumála kvenna en hún rekur fyrirtæki undir því nafni. Hún framleiðir tinktúrur og smyrsl úr íslenskum lækningajurtum. Okkur lék forvitni á að vita meira um hana verkefnið.

Segðu aðeins frá sjálfri þér - hver er konan?
Ég lærði grasalækningar í Bretlandi í fjögur ár og er félagi í Breska grasalækningafélaginu: The National Institute of Medical Herbalist en það er elsta félag grasalækna í heimi, stofnað árið 1894 en til að fá inngöngu í það þarf að hafa B.Sc gráðu eða sambærilega menntun. Ég lauk námi fyrir 18 árum og starfaði í mörg ár við ráðgjöf á eigin stofu en síðan tók ég mér hlé eftir að ég lauk B.Sc. gráðu í viðskiptafræði frá Háskólanum í Reykjavík 2004. Þá einbeitti ég mér að því fagi í nokkur ár þar til ég hóf að starfa aftur sem grasalæknir árið 2008, opnaði stofu aftur og byrjaði á vöruþróun á þeim vörum sem nú eru á markaði undir nafninu Anna Rósa grasalæknir.

Til hvaða verkefnis fékkst þú styrk?
Upphaflega fékk ég styrk til vöruþróunar verkefnisins „Íslenskar tinktúrur" en síðan bættist við það verkefni bæði krem og smyrslagerð líka. Í fyrra fékk ég síðan aftur styrk til markaðsetningar á sama verkefni.

Hvernig fékkstu hugmyndina að verkefninu/fyrirtækinu þínu?
Ég hef alla tíð sérhæft mig í því að vinna eins mikið og hægt er eingöngu með íslenskar lækningajurtir. Mér hefur alltaf þótt gaman að tína jurtirnar sjálf og vinna úr þeim. Kveikjan að vörulínunni var sú að mér fannst vanta bæði góðar íslenskar snyrtivörur á markaðinn og einnig tinktúrur. Tinktúrur eru aldagömul vinnsluaðferð grasalækna þar sem virk efni úr lækningajurtum eru leyst upp í vínanda og þær síðan teknar inn sem fæðubótarefni. Erlendis er mjög mikið úrval af tinktúrum í boði fyrir almenning við ýmsum kvillum en því er ekki að heilsa hér. Mér fannst því tími til kominn að kynna tinktúrur betur fyrir íslendingum.

Fyrir utan lækningajurtirnar þá skiptir gott hráefni í kremgerð öllu máli, en ég legg mikinn metnað í að nota gott lífrænt hráefni. Margir eru með viðkæma húð og þola t.d illa tilbúin ilmefni og paraben rotvarnarefni í hefðbundnum kremum. Ég nota hvorugt í mín krem og þau hafa fengið afskaplega góðar viðtökur.

Hvað veitir þér innblástur?
Þegar ég vinn við ráðgjöfina þá sé ég aftur og aftur hversu megnugar lækningajurtirnar eru. Það er mjög mikill innblástur að sjá einhvern sem lengi hefur verið veikur ná bata með jurtunum en það sé ég mjög reglulega. Eins er það alltaf innblástur þegar fólk lætur mig vita hversu ánægt það er með vörurnar sem eru á markaði en mikið er um að fólk hringi í mig eða láti vita á Facebooksíðunni minni. Síðan er það alltaf innblástur að halda námskeið og sjá áhuga fólks á lækningajurtum því afar mikið er hægt að gera sem forvörn.

Hvernig gekk þér að koma hugmyndinni áfram?
Það gekk mjög vel og viðtökurnar við vörunum hafa farið fram úr björtustu vonum. Mjög margir hafa haft samband við mig og lýst yfir ánægju með vörurnar og fyrir það er ég mjög þakklát.

Hvað er skemmtilegast ?
Skemmtilegast er að tína jurtirnar út í guðsgrænni náttúrunni á góðum degi. Svo finnst mér líka mjög gaman að standa yfir pottunum og sjá krem verða til.

Hvað er erfiðast?  
Ég held það sé erfiðast hversu stuttur tími er til að tína jurtir á sumrin, en ég þarf að vinna nánast í akkorði til að ná inn öllu á stuttum tíma. Svo gera eldgos mér líka lífið leitt og mikil rigning.

Hvað hvetur þig áfram ?
Ég er með óbilandi áhuga á lækningajurtum og það er endalaust hægt að læra meira um þær. Það hvetur mig áfram að fræða fólk um lækningajurtir því þær eru ekki bara til lækninga heldur líka mjög góð forvörn.

Eitthvað að lokum?
Ég hvet fólk til drekka jurtate á hverjum degi sér til heilsubótar og fara svo og tína jurtir næsta sumar. Það er af nógu að taka og algengt illgresi sem vex allstaðar er oft mikilhæfar lækningajurtir.


Póstlisti

Hér er hægt að skrá sig á póstlista og fá sendar fréttir af verkefninu. Fylgstu með !!


Speki dagsins

Ef þér finnst þú of lítil til að geta haft áhrif, prófaðu þá að hátta hjá moskítóflugu.
Anita Roddick

Atvinnumál kvenna á facebook
Atvinnumál kvenna á twitter

Stækka og minnka texta

Auðlestrarhamur Stækka letur Minnka letur

English information

Information in english

Danish information

Information pa dansk