Kúlan - Viđtöl
25.8.2011
Kúlan
Bryndís Bolladóttir fékk styrk síðastliðið vor til að þróa Kúluna, en það er hljóðdempunar- og hljóðdreifiverk. Gæði hljóðs og
hljóðmengun koma okkur öllum við en Kúlan bætir gæðin og dregur úr hljóðmengun. Auk þess að vera hljóðdempandi er Kúlan einnig falleg hönnun sem sómir sér vel á vegg.
Hver er konan ?
Ég er menntaður hönnuður frá LHÍ og hef mikinn áhuga á hönnun og myndlist og hef unnið að sköpun síðsutu 10 árin ásamt því að ala upp börn sem er ekki síðsta sköpunin.
Ég seldi danska hönnunarfyrirtækinu Normann Copenhagen tvo vöruflokkaárið 2010. Sú hönnun er enn framleidd á Íslandi úr íslensku hráefni og er seld út um allan heim.
Hvernig kom hugmyndin að verkefninu?
Mjög víða eru hljóðvandamál af ýmsu tagi og þar sem mitt sérsvið er íslenska þæfða ullin leitaði fólk til mín og bað mig um aðstoð við að leysa úr þessu. Þæfð ull hefur mjög gott íssog og er því mjög heppileg sem efstalagið í hljóðdempun.
Með kúlunni teks mér að tvinna saman 3 hluti sem er mjög sérstakt en það er: Hljóðdempari , hljóðdreifari og gera fallegt veggverk. Verkefnið er unnið í samstarfi við Stúdíó Sýrland.
Hvað hvetur þig mest áfram í þinni vinnu ?
Sköpun er mitt eðli og mér finnst hljóðpælingar mjög spennandi. Að bæta hljóðið í umhverfi fólks er mjög stórt og þarft verkefni sem kemur okkur öllum við. Það gefur manni mikinn styrk að leita til annara fagaðila eins og Sýrlands sem hjálpa manni að ná til nýrra vídda sem gerir verkefnið ennþá meira spennandi. Þá spillir ekki fyrri almennur áhugi fólks á verkefninu.
Hvað er erfiðast að takast á við sem frumkvöðull?
Peningahliðin er alltaf erfið en að byggja upp sérþekkingu tekur tíma og þá vantar fjármagn til að halda manni á floti. Þetta tekst ekki nema með miklum áhuga.
Hver eru næstu skref hjá þér?
Það sem framundan er er að kynna Kúluna og markaðssetja hana en minn draumur er að sjá hana fara inn í sem flesta skóla og stofnanir. Þá stendur einnig til að fara á sýningu erlendis og verður spennandi að sjá viðtökurnar erlendis.

Kúlan

Kúlur á vegg








