Heilsa og vellíđan í fyrirrúmi hjá Heilsuborg ! - Pistlar frá Heilsuborg
20.9.2010
Heilsa og vellíđan í fyrirrúmi hjá Heilsuborg !
Hvað er Heilsuborg?
Erla: „Heilsuborg er heilsurækt sem opnaði í Faxafeni 14 fyrir tæpu ári síðan. Heilsuborg er staður þar sem þú getur unnið með heilsuna og fengið aðstoð fagaðila við að tileinka þér heilbrigðan lífsstíl og ná fram betri líðan. Við teljum okkur boða nýjar áherslur með því að brúa bilið á milli líkamsræktar og heilbrigðisþjónustu sem við gerum með því að flétta saman hreyfingu, fræðslu og meðferð fagaðila."
Fyrir hverja er Heilsuborg?
Anna: „Hér æfir fólk á öllum aldri og eru sumir í mjög góðu formi en aðrir eru að koma í heilsurækt í fyrsta skipti. Við erum með mjög fjölbreytta möguleika í þjálfun sem henta breiðum hópi fólks. Við erum með fyrsta flokks tæki í tækjasalnum af gerðinni Technogym. Tækjunum tilheyrir lyklakerfi sem býður upp á þann möguleika að þjálfunaráætlun verði sett inn á lykil sem leiðbeinir um æfingar og skipulag. Markmið okkar er að vera skrefnu á undan sjúkdómunum og innleiða heilbrigt líf hjá einstaklingum sem fyrst. En það er aldrei of seint að grípa inní og breyta lífsstílnum."
Hvernig námskeið er boðið uppá?
Anna: "Við bjóðum uppá margvíslega hreyfingu s.s. námskeið snemma á morgnanna fyrir þá sem vilja taka daginn snemma, karlatíma, yoga, hraðlest í hádeginu, bakleikfimi o.m.fl. Síðan bjóðum við uppá námskeið sem við köllum Heilsulausnir en þar er fléttað saman mati og meðferð fagaðila, fræðslu og hreyfingu við hæfi. Heilsulausn 1 - Heilbrigt líf er 4 vikna námskeið ætlað hraustu fólki, sem vill tileinka sér hollari matarvenjur og stunda reglulega hreyfingu. Heilsulausn 2 - Betra líf er 8 vikna námskeið sem hentar einstaklingum sem glíma við einkenni frá stoðkerfi svo sem bakverki, eftirstöðvar slysa eða gigt. Það hentar einstaklingum sem vilja hreyfingu undir leiðsögn sjúkraþjálfara og vilja jafnframt bæta lífsstíl sinn almennt. Heilsulausn 3 - Léttara líf hentar einstaklingum sem glíma við offitu, hjartasjúkdóma og/eða sykursýki. Ţað ættu því allir að finna hreyfingu við hæfi í Heilsuborg".
Hverjir starfa í Heilsuborg?
Erla: "Í Heilsuborg starfa læknar, hjúkrunarfræðingar, sjúkraþjálfarar, næringarfræðingar, sálfræðingar, íþróttafræðingar, fótaaðgerðafræðingar og fleiri. Við leggjum áhersla á forvarnir, meðferð og endurhæfingu sjúkdóma sem lífstíll hefur mikil áhrif á. Fagaðilar Heilsuborgar starfa í náinni samvinnu við aðra meðferðaraðila hvers einstaklings í þeirri viðleitni að tryggja heildræna meðferð og samfellu í okkar þjónustu."
Lokaorð!
„Við viljum að fólk geti lifað góðu lífi og borðað hollan mat, hreyft sig reglulega og fundið að það hefur tökin í sínu daglega lífi, þetta snýst ekki um boð og bönn. Hver gerir þetta á sínum hraða og hjálpum við fólki að finna sinn takt í daglegu lífi og líða vel."
Erla Gerður
Anna Borg








