Stöndum saman og hugum ađ heilsunni. - Pistlar frá Heilsuborg
4.10.2010
Stöndum saman og hugum ađ heilsunni.
Pistill frá Heilsuborg 
Samskiptamáti okkar er að breytast og hraðinn í samfélaginu er að aukast. Breyttir atvinnuhættir, ferðamáti, aukin tölvunotkun og sjónvarpsáhorf hafa áhrif á meiri kyrrsetu landsmanna nú en áður. Of mikil inntaka á hitaeiningum samhliða lítilli hreyfingu hefur bein áhrif á þyngd. Með hollu mataræði, nægri hreyfingu og án reykinga metur Alþjóðaheilbrigðisstofnun það svo að hægt sé að fyrirbyggja 90% af sykursýki II, 80% tilfella af hjarta- og æðasjúkdómum og 30% af öllum krabbameinstilfellum. (WHO 2002) Síðustu áratugi hefur bæði börnum og fullorðnum sem eru yfir kjörþyngd fjölgað svo mikið víða um heim að Alþjóðaheilbrigðisstofnunin (WHO) hefur lýst ástandinu sem faraldri. (Obesity 2000) Á Íslandi eru 66,6% karla og 53,5% kvenna yfir kjörþyngd. Offita hefur aukist um 12,8% meðal kvenna og 11,7% meðal karla undanfarna tvo áratugi. (Lýðheilsustöð 2009)
Til að sporna við þessari þróun er mikilvægt að við stöndum saman og hugum að heilsu okkar og annarra í kringum okkur. Komum til móts við aukna kyrrsetu og hreyfum okkur reglulega. Verum góð fyrirmynd barnanna okkar og virkjum alla fjölskylduna til þátttöku. Gönguferðir með fjölskyldunni styrkja ekki eingöngu hjarta- og æðakerfið heldur einnig tengsl fjölskyldunnar. Félagsleg hvatning frá fjölskyldu og vini eða samskipti við aðra getur verið hvatning til að byrja að stunda hreyfingu. En líklegra er að fólk haldi áfram að stunda líkamsrækt ef að það nær settu marki og hefur gaman af hreyfingunni. (Jackson ofl.2004) Veldu því hreyfingu sem þér og fjölskyldunni finnst skemmtileg. Notaðu hugmyndarflugið og hreyfðu þig við hvert tækifæri. Öll hreyfing telur. Bjóddu fjölskyldunni í haustgöngu í Heiðmörk, sund í sveitinni, á skauta eða út í ,,eina krónu". Farið í badminton, klifur, flúðasiglingu eða hestbak. Skapið hreyfingu úr sameiginlegu áhugamáli t.d. með gönguferð á bókasafnið, kaffihúsið eða á sögufræga staði. Nýtið hvert tækifæri til samveru og jákvæðrar eflingar á heilsu og heilbrigðum lífstíl fjölskyldunnar.
Haddý Anna Hafsteinsdóttir
Íþróttafræðingur/Einkaþjálfari
Verkefnastjóri námskeiða hjá Heilsuborg








