Heilbrigður lífsstíll og hugræn atferlismeðferð - Pistlar frá Heilsuborg
3.12.2010
Heilbrigður lífsstíll og hugræn atferlismeðferð
Pistill frá Heilsuborg
Þegar markmiðið er að taka upp heilbrigðari lífsstíl vitum við að gott mataræði skiptir miklu máli, að borða holla fæðu í réttu magni á 
réttum tíma og að fá góða og næga hreyfingu. Ekki er óalgengt að fólk einblíni á þessa tvo þætti og ætli sér að breyta þeim eingöngu án þess að huga að öðrum þáttum. Ef okkur er ekki að ganga nógu vel að taka upp heilbrigðari lífsstíl getur verið mjög gagnlegt að skoða þessa aðra þætti og vinna með þá. En hvaða þætti erum við að tala um?
Lífsstílshringurinn inniheldur 10 þætti sem allir hafa áhrif á hvernig gengur að breyta um lífsstíl og þar með efla lífsgæði okkar. T.d. streita, hversu mikil streita er í lífi mínu? Áhugamál, er ég að sinna áhugamálum mínum yfirhöfuð eða því sem að gefur mér andlega næringu? Svefn, hvernig er svefninn minn? Samskipti, hversu sátt/ur er ég við samskipti mín? Viðhorf mín og líðan, hvernig er líðan mín? Er ég yfirleitt jákvæð/ur? Hver af þessum þáttum hefur nefnilega sterk áhrif á hina. Með því að vinna t.d. í svefninum (koma reglu á hann, hætta að leyfa okkur að blunda á daginn) kemur okkur örugglega til með að ganga betur að borða reglulega og hafa næga orku til að fara í hreyfingu. Ef við vinnum í að minnka streitu (förum reglulega í slökun, jóga, minnum okkur á að hægja aðeins á í erli dagsins) hefur það án efa jákvæð áhrif á líðan okkar, viðhorf og samskipti. Ef við gefum okkur tíma til að sinna áhugamálum okkar hefur það örugglega jákvæð áhrif á líðan okkar og viðhorf sem verður til þess að við eigum auðveldara með að drífa okkur í leikfimina. Mýmörg dæmi eru um að þegar fólk fer að vinna í öðrum þáttum í lífsstílshringnum fer að ganga mun betur varðandi mataræði/neysluvenjur og hreyfingu.
Hugræn atferlismeðferð er meðferðarform þar sem unnið er með hugsanir, hegðun og líðan og tengslin þar á milli. Í meðferðinni fær einstaklingur í hendur verkfæri til að greina á milli þessara þátta og skilja hvernig þeir virka á hvorn annan. Á þann hátt uppgötvar hún/hann hvernig erfiðar tilfinningar geta breyst við það að taka eftir, skoða og vinna með hugsanamynstur sitt. Einnig eru notuð verkfæri til að skoða hegðun og áhrif hennar á líðan og hugsanir. Meðferðin var upphaflega þróuð til að takast á við þunglyndi en hefur verið löguð að og notuð einnig með góðum árangri við ýmsum öðrum kvillum t.d. kvíða, áfengis- og vímuefnavanda, lotugræðgi, langvinnum verkjum, áfallastreitu, lágu sjálfsmati, lotuáti og fleiri kvillum. Oft talar fólk um að það detti í gamla mynstrið án þess að gera sér grein fyrir því. Það er kannski búið að vera mjög duglegt að stunda „heibrigðan lífsstíl" í einhverjar vikur en er svo komið aftur í gamla mynstrið - fær sér aukabitann eða sleppir leikfiminni nánast án þess að taka eftir því. Vaninn er jú sterkur. Hugræn atferlismeðferð getur hjálpað við að brjóta upp þennan vana, skoða tengslin milli hugsunar, hegðunar og líðan: Við hvaða aðstæður er ég líklegust/-astur til að gera þetta, hvað fer ég þá að hugsa, hvernig líður mér þá? Þegar um neikvætt mynstur er að ræða sem við viljum breyta getur oft verið nauðsynlegt að skoða hugsanirnar sem viðhalda mynstrinu og koma með hjálplegri í staðinn.
Í Heilsuborg er boðið upp á námskeiðið Hugræn atferlismeðferð og heilbrigður lífsstíll þar sem unnið er með þá þætti sem hér hafa verið nefndir. Einnig er stuðst við meðferðarnálganirnar: Þjálfun svengdarvitundar (Appetite Awareness training), Gjörhygli (Mindfulness) og Þjálfun Samkenndar (Compassion-Mind Training). Sjá nánar á heilsuborg.is.
Helma Rut Einarsdóttir, sálfræðingur og Valgerður Margrét Magnúsdóttir, hjúkrunarfræðingur








