Um Atvinnumál kvenna
Síðan 1991 hafa styrkir verið veittir til kvenna sem hafa góðar viðskiptahugmyndir en það var þáverandi félagsmálaráðherra Jóhanna Sigurðardóttir sem kom því verkefni af stað. Á þeim tíma var atvinnuleysi kvenna töluvert og styrkirnir ætlaðir sem mótvægi við það og sem tækifæri fyrir konur í viðskiptum með því að auka aðgengi kvenna að fjármagni.
Á hverju ári hefur verið úthlutað í kringum 15-20 milljónum í fjölbreytt verkefni víðsvegar um landið sem oft hafa skipt sköpum fyrir konurnar og hvatt þær áfram í sínum fyrirtækjarekstri. Árið 2008 ákvað ráðherra að stórauka við upphæðina og eru nú 50.milljónir til umráða sem verður veitt til spennandi verkefna víðsvegar um landið. Styrkirnir eru veittir af Félagsmálaráðuneytinu en það er Vinnumálastofnun sem að hefur vistað verkefnið hin síðustu ár.
Árið 2008 var ákveðið að ráða starfsmann til að sinna verkefninu auk þess sem að hlutverk hans er að auka við ráðgjafaþáttinn og sinna eftirfylgni við styrkþega. Starfsmaðurinn var ráðinn á vordögum og tók til starfa þann 1.júní. Hún heitir Ásdís Guðmundsdóttir og er félagsfræðingur að mennt en hefur einnig MSc gráðu í stjórnun frá Viðskiptaháskólanum á Bifröst. Hennar starfstöð er á Sauðárkróki en hún sinnir ráðgjöf við konur um land allt.
Auk þess að sinna sjóðnum og styrkveitingum verður hennar hlutverk eins og áður segir að veita ráðgjöf og sinna eftirfylgni við styrkþega. Heimasíða þessi verður þungamiðjan í verkefninu en auk upplýsinga sem hér er hægt að fá verður fræðsla í boði fyrir konur auk þess sem samfélag kvenna í atvinnurekstri verður sett á laggirnar hér. Í gegnum það geta konur haft samskipti og samráð varðandi fyrirtækjarekstur sinn og hugmyndir, sótt ráð til hvor annara og verið með upplýsingar um sig og sín fyrirtæki.
Póstlisti
Hér er hægt að skrá sig á póstlista og fá sendar fréttir af verkefninu. Fylgstu með !!
Speki dagsins
Ekkert hamlar jafn mikið góðum samskiptum þínum við annað fólk, eins og ósætti við sjálfan þig. - Honore De Balzac








