Leiðbeiningar um útfyllingu
Leiðbeiningar um útfyllingu eyðublaðs - Styrkir til atvinnumála kvenna
Mjög mikilvægt er að umsókn sé vel útfyllt, markmið verkefnis séu skýr og áætlanagerð vel ígrunduð og nákvæm. Betra er að rita styttri og nákvæmari texta en lengri og ítarlegri.
Sérstök athygli er vakin á því að ef eingöngu er sótt um til gerðar viðskiptaáætlunar þá þarf eingöngu að greina frá viðskiptahugmyndinni, nýnæmi hennar og markmiðum.
Grunnupplýsingar
Hér þarf að fylla út nafn umsækjanda (einstaklingur eða fyrirtæki), kennitölu, heimilisfang, síma og netfang auk veffangs ef við á.
Upplýsingar um umsækjanda
Hér er hægt að setja inn upplýsingar um umsækjanda, menntun, starfsreynslu og annað sem máli skiptir.
Upplýsingar um fyrirtækið
Hér þurfa að koma fram upplýsingar um hvenær fyrirtækið var stofnað, hver fjöldi starfsmanna er á ársgrundvelli, hverjir eru eigendur og hver eignarhluti þeirra er. Upplýsingar um stjórnendur fyrirtækis, framkvæmdastjóra og aðra stjórnendur.
Lýsing á starfsemi - hér þarf að lýsa starfsemi fyrirtækisins, er það framleiðslu- eða þjónustufyrirtæki og í hvaða atvinnugrein er það. Hvert er starfssvið fyrirtækis og umfang starfseminnar og hver er velta fyrirtækisins í dag og áætluð velta að verkefni loknu.
Heiti á verkefni
Lýsandi nafn á verkefni
Viðskiptahugmyndin - lýsing á verkefni
Hér þarf að koma góð útlistun og lýsing á viðskiptahugmyndinni og mjög mikilvægt að þessi þáttur umsóknar sé vel unninn. Ef verið er að sækja um afmarkað verkefni þarf samt sem áður að gera grein fyrir allri hugmyndinni og síðan sérstaklega því verkefni sem um ræðir.
Markmið verkefnis
Hér þarf að útlista á hnitmiðaðan hátt markmið verkefnisins. Markmið geta verið ýmisskonar, að gera markaðs- og kynningaráætlun eða vinna að vöruþróun. Mikilvægt er að greina frá því hver árangur verkefnis á að vera, t.d. vara eða þjónusta sem verður til.
Skýr markmiðasetning er mikilvægt tæki til að gera sér grein fyrir því hvert ferðinni er heitið og hvernig á að ná þangað.
Nýnæmi vöru/þjónustu
Skilgreina þarf hér á hvaða hátt um nýnæmi/nýsköpun er að ræða. Ef um nýja vöru að ræða þarf að útlista nýnæmi hennar og hvað er það sem gerir þessa vöru frábrugðna annari vöru. Ef um vöruþróun er að ræða þarf að greina frá því hvernig varan/þjónustan mun leysa aðrar af hólmi á einhvern hátt og þá hvernig.
Markhópur - Markaðsgreining
Hér þarf að koma fram greining á væntanlegum markhópi fyrirtækis/verkefnis og hvert markaðssvæði vöru/þjónustu er. Er markhópur og markaðssvæði staðbundið innan ákveðins svæðis innanlands, er það allt landið eða er markaðssvæðið erlendis.
Hver er stærð markaðarins og umfang hans og hvernig á að markaðssetja vöruna/þjónustuna.
Hve mörg störf er áætlað að verkefnið skapi?
Hér þarf að koma fram áætlun um það hve mörg störf verkefnið muni skapa þegar búið er að framkvæma það.
Hefur umsækjandi fengið styrk áður hjá atvinnumálum kvenna?
Hér er gerð grein fyrir fyrri styrkveitingum frá atvinnumálum kvenna, hvort og þá hvenær.
Hefur umsækjandi fengið aðra opinbera styrki á síðastliðnum árum? Ef já, hvaða og hvenær?
Mjög mikilvægt er að greina frá öðrum opinberum styrkjum sem fengist hafa áður vegna verkefnisins.
Hefur umsækjandi sótt um aðra styrki vegna verkefnisins í ár?
Hér er gerð grein fyrir öðrum styrkumsóknum vegna verkefnisins.
Kostnaðar- og tekjuáætlun
Mjög mikilvægt er að vanda áætlanagerð en hér er annarsvegar gerð grein fyrir kostnaði við verkefnið og hinsvegar tekjum við það, eigið framlag, styrkir, lán ofl.
Kostnaðaráætlun
Þarf að innihalda yfirlit yfir áætlaðan kostnað við verkefnið. Sundurliða skal kostnað eins nákvæmlega og unnt er. Ekki er hægt að sækja um styrk nema fyrir helmingi kostnaðar. Fyrir neðan skal grein fyrir forsendum tekjuáætlunarinnar.
Tekjuáætlun
Hverjar eru áætlaðar tekjur verkefnisins, sala vöru, aðgangseyrir o.s.frv.,
Fjármögnun
Hér þarf að greina frá fjármögnun verkefnis. Hér þarf að setja inn eigið framlag (vinnuframlag eða annað), gera grein fyrir öðrum styrkjum sem hugsanlega fást.
Fyrir neðan skal gera nánari grein fyrir forsendum áætlunarinnar.
Sótt er um styrk að upphæð
Hér þarf að greina frá því hver upphæð styrkbeiðni til atvinnumála kvenna er en sú tala færist sjálfkrafa niður í reitinn „sótt er um styrk að upphæð"
Athugið að um stjörnumerktan reit er að ræða - ef hann er ekki útfylltur þá er ekki hægt að senda inn umsókn.
Verkáætlun
Hér þarf að útlista það hvenær og hvernig á að vinna verkefnið, verkþættir eru sundurliðaðir og tímasettir eins nákvæmlega og unnt er, greint er frá markmiðum hvers hluta, hvenær honum á að vera lokið og greint frá áætluðum kostnaði hvern verkhluta.
Gagnlegt er að brjóta verkefnið niður í verkþætti og þannig gera sér betur grein fyrir þeim verkefnum og kostnaði sem til fellur við hvern lið. Þannig fæst betri yfirsýn yfir verkferla og verkið í heild og hvaða tíma tekur að vinna það.
Samkeppni
Hér skal greina frá því hverjir eru helstu samkeppnisaðilar vöru/þjónustu ef einhverjir eru. Hver er hugsanleg samkeppni og hvaða áhrif mun hún hafa á verkefnið?
Samstarfsaðilar
Eru samstarfsaðilar í verkefninu og ef svo er, hverjir eru þeir og hvert er þeirra framlag? Samstarfsaðilar geta verið af ýmsum toga, það geta verið stofnanir, fyrirtæki, ráðgjafar og fleira.
Sótt er um styrki vegna
Hér þarf að haka við í það sem við á en bent er á að hægt er að merkja við fleiri en einn reit.
Hægt er að sækja um styrk til gerðar viðskiptaáætlunar og eru veittar 400 þúsund krónur til þess. Ef að hugmynd er skammt á veg komin getur verið gagnlegt að hefja verk á því að útbúa viðskiptaáætlun.
Hægt er að sækja um styrk vegna þróunarverkefna af ýmsu tagi s.s. vöruþróunar eða þróunar nýrrar vöru/þjónustu.
Hægt er að sækja um styrk til hönnunar af ýmsu tagi, s.s. umbúðahönnunar eða vöruhönnunar.
Hægt er að sækja um styrk til efniskostnaðar og kostnaðar við markaðssetningu svo sem hönnunar heimasíðna og gerð auglýsinga- og kynningarefnis af ýmsu tagi.
Þær konur sem hafa tilbúna viðskiptaáætlun sem er trúverðug og vel unnin er hægt að sækja um styrk vegna launakostnaðar við að hrinda henni í framkvæmd. Athuga ber að þá þarf fullbúin viðskiptaáætlun að fylgja með umsókn.
Ef sótt er um þennan lið þarf að senda viðskiptaáætlun með umsókn. Hægt er að setja hana inn á umsóknina sem viðaukaskjal, sjá neðst í umsókn.
Einnig er möguleiki að sækja um vegna annars kostnaðar sem er settur undir liðinn annað.
Taka ber fram að ekki eru veittir styrkir vegna stofnkostnaðar, rekstrarkostnaðar og stærri fjárfestinga svo sem eins og í aðstöðu (húsaleiga, kaup á húsnæði) tækjum og búnaði.
Viðaukaskjöl - hér er hægt að setja inn tvö viðaukaskjöl, mjög gott er að fá myndir af vöru sem verið er að þróa/hanna.
Hvernig fékkst þú upplýsingar um verkefnið - hér ert þú góðfúslega beðin um að segja okkur hvar þú fékkst upplýsingar um verkefnið. Það er til að við getum betur metið upplýsingagjöf okkar og komið betur til móts við viðskiptavini okkar.
Umsóknarfrestur
Umsóknarfrestur rennur út 14.febrúar 2012
Nálgast má pdf skjal með leiðbeiningum um útfyllingu með því að smella hér.
Póstlisti
Hér er hægt að skrá sig á póstlista og fá sendar fréttir af verkefninu. Fylgstu með !!
Speki dagsins
Ekkert hamlar jafn mikið góðum samskiptum þínum við annað fólk, eins og ósætti við sjálfan þig. - Honore De Balzac








