Reglur um styrkveitingar
Reglur vegna styrkveitinga
- Styrkhæf verkefni skulu vera í eigu kvenna (amk 50%) og stjórnað af konum.
- Verkefnið skal fela í sér atvinnusköpun til frambúðar.
- Um nýnæmi skal vera að ræða, annaðhvort nýja vöru/þjónustu eða þróun vöru/þjónustu
- Kröfur eru gerðar um að viðskiptahugmynd sé vel útfærð, markmið skýr og leiðir að þeim vel útfærðar.
- Verkáætlun skal vera vel útfærð og raunhæf og kostnaðar og tekjuáætlun vönduð, skýr og trúverðug.
- Kröfur eru um að verkefnið skekki ekki samkeppnisstöðu á þeim markaði sem varan eða þjónustan er á.
- Hámarksstyrkur er að jafnaði kr. 3.000.000 en ekki eru veittir lægri styrkir en kr. 400.000. Athugið að aðeins er hægt er að sækja um styrk vegna helmings af kostnaði verkefnis og þvi þarf að sýna fram á eigið mótframlag í umsókn.
- Veittir eru styrkir til gerðar viðskiptaáætlunar (300.000), áætlanagerðar, þróunarkostnaðar og markaðssetningar - sjá nánar í umsóknareyðublaði.
- Ef fyrirtæki er nýstofnað en ekki komið í rekstur og/eða liggi trúverðug viðskiptaáætlun fyrir og viðkomandi að hefja rekstur er hægt er að sækja um styrk til að hrinda hugmynd í framkvæmd (launastyrkur fyrir viðkomandi styrkþega) Styrk má greiða í áföngum gegn skilum áfangaskýrslu og þarf að sýna fram á launaseðla þegar lokaskýrslu er skilað.
- Ekki eru veittir styrkir til stærri fjárfestinga né rekstrarstyrkir.
- Vakin er athygli á því að styrkir eru skattskyldir og þarf að telja fram kostnað á móti. Kostnaður skal vera helmingi hærri en styrkupphæð nemur. Dæmi: Veittum styrk, sem er kr. 500.000 að upphæð, þarf að fylgja kostnaðaryfirlit upp að lágmarki 1.000.000. Leyfilegt er að telja 50% af styrkupphæð sem framlag styrkhafa.
- Ef sótt er um gerð viðskiptaáætlun þarf eingöng að fylla út Lýsing á viðskiptahugmynd, markmið og nýnæmi.
- Taka ber fram að styrkirnir eru ekki ætlaðir opinberum félögum eða félagasamtökum.
Póstlisti
Hér er hægt að skrá sig á póstlista og fá sendar fréttir af verkefninu. Fylgstu með !!
Speki dagsins
Ekkert hamlar jafn mikið góðum samskiptum þínum við annað fólk, eins og ósætti við sjálfan þig. - Honore De Balzac








