Beint á leiðarkerfi vefsins
Atvinnumál kvenna

Skýrsla


Við undirskrift samnings sem sendur er til Atvinnumála kvenna er helmingur styrks greiddur út. Til að fá greiddar eftirstöðvarnar þarf að skila skýrslu til Atvinnumála kvenna ásamt yfirliti yfir reikninga.

Skýrsla

Til að fá lokagreiðslu styrks ber styrkþegum að skila inn lokaskýrslu ásamt yfirliti yfir kostnað.    Verkefnisstjóri Atvinnumála kvenna ber saman skýrslu og umsókn og metur hvort tilteknum verkefnum hafi verið lokið.  

Mikilvægt er að huga að því að skýrslugerðin skal að miðast við þá þætti sem styrktir voru og það sama á við um kostnað vegna verkefnisins, yfirlit um kostnað á eingöngu að vera vegna viðkomandi verkefnis.  

Í lokaskýrslu er gerð ítarleg grein fyrir lokaniðurstöðu verkefnis.

  • Nauðsynlegt er að fara yfir þá verkþætti sem hafa verið unnir og hvernig var staðið að framkvæmdinni. 
  • Fara þarf yfir og meta þann árangur sem náðst hefur í verkefninu og hverjar niðurstöður þess urðu. 
  • Gera þarf grein fyrir hverju vinnan skilaði varðandi áframhaldandi framgang verkefnisins og hver verða næstu skref. 
  • Gera þarf grein fyrir heildarkostnaði verkefnisins en hann þarf að vera að lágmarki helmingi hærri en upphæð styrks.

Velkomið er að senda skýrslur á rafrænu formi eingöngu. Mjög mikilvægt er að skýrslan sé vel úr garði gerð, hún nákvæm og útlisti alla þætti mjög vel og gott er að láta fylgja með myndir.

Góð skýrsla á að vera vitnisburður um verkefnið ykkar, að það hafi skilað þeim árangri sem ætlast var til í upphafi.

Þær sem fengu styrk til að gera viðskiptaáætlun skila henni fullgerðri inn og fá þá eftirstöðvar styrks greiddan. Í þeim tilfellum þarf ekki að skila yfirliti yfir kostnað.

Umsækjendur þurfa að skila skýrslu innan eins árs en að öðrum kosti fellur styrkur niður.

Fyrirmynd að skýrslu má finna hér

Skýrslu eða viðskiptaáætlun á að skila til:

Vinnumálastofnun
Atvinnumál kvenna
Faxatorgi 1
550 Sauðárkrókur

Skýrslu eða viðskiptaáætlun má einnig senda í tölvupósti á netfangið:
asdis.gudmundsdottir@vmst.is

 


Póstlisti

Hér er hægt að skrá sig á póstlista og fá sendar fréttir af verkefninu. Fylgstu með !!


Speki dagsins

Ekkert hamlar jafn mikið góðum samskiptum þínum við annað fólk, eins og ósætti við sjálfan þig. - Honore De Balzac

Atvinnumál kvenna á facebook
Atvinnumál kvenna á twitter

Stækka og minnka texta

Auðlestrarhamur Stækka letur Minnka letur

English information

Information in english

Danish information

Information pa dansk