Umsóknarferli
Umsóknarferli
- Styrkir eru auglýstir til úthlutunar einu sinn á ári og og er umsóknum skilað inn rafrænt á heimasíðuna http://www.atvinnumalkvenna.is/ þar sem ennfremur eru leiðbeiningar um útfyllingu. Umsóknir eru metnar og afgreiddar af ráðgjafanefnd.
- Ákvörðun um úthlutun mun liggja fyrir innan 8 vikna eftir að umsóknarfrestur er liðinn.
- Að lokinni úthlutun er öllum umsækjendum sent bréf um ákvörðun nefndarinnar.
- Styrkþegar frá helming styrks greiddan í kjölfar undirritunar samnings um styrkveitinguna.
- Seinni helmingur styrks fæst greiddur við skil á skýrslu um verkefnið og framvísun afrits af reikningum vegna útlagðs kostnaðs innan árs frá því að styrkur er samþykktur.
- Ef hvorki berst skýrsla né reikningur er styrkur afturkræfur.
Í ráðgjafarnefnd sem úthlutar styrkjum sitja:
Steinunn Valdís Óskarsdóttir, fulltrúi velferðarráðherra
Ingibjörg Elíasdóttir, Jafnréttisstofu
Margrét Gunnarsdóttir, Vinnumálastofnun
Sigríður Elín Þórðardóttir, Byggðastofnun
Póstlisti
Hér er hægt að skrá sig á póstlista og fá sendar fréttir af verkefninu. Fylgstu með !!
Speki dagsins
Ekkert hamlar jafn mikið góðum samskiptum þínum við annað fólk, eins og ósætti við sjálfan þig. - Honore De Balzac








