Beint á leiðarkerfi vefsins
Atvinnumál kvenna

Aukaúthlutun 2007

 

Aukaúthlutun 2007

     

Alda Davíðsdóttir

450 Patreksfjörður

Sjóræningjahúsið - menningartengd ferðaþjónusta

500.000   

Anne Manly Thomsen

781 Höfn í Hornafirði

Heimavinnslan Jöklaís

300.000   

Ásta Hafberg S.

750 Fáskrúðsfjörður

Útivista/skóþurrkunarofnar (Ísofnar)

200.000   

Bergrún Jóhanna Borgfjörð

720 Borgarfjörður ey

Álfheimar ferðaþjónusta Borgarfirði eystra

1.000.000   

Dorothee Lubecki

801 Selfoss

Lífrænar rabarbara- og berjasultur

300.000   

Elín Rósa Bjarnadóttir

545 Blönduós

Stofa Höllu og Eyvindar

1.000.000   

Gauksmýri ehf

531 Hvammstanga

Hrafnaþing - sýning um íslenska hrafninn

1.000.000   

Guðríður Ragnarsdóttir

111 Reykjavík

Berjamór

300.000   

Guðrún Egilsdóttir

601 Akureyri

Rjómaísgerð og kaffihús

500.000   

Hallfríður Finnborg Sigurðardóttir

510 Hólmavík

Töfrastiklingar

1.000.000   

Helga Ingimarsdóttir

545 Skagaströnd

Úr hreiðri í sæng

300.000   

Hildur Pálsdóttir

510 Hólmavík

Álfasulta og Heljarskinn

300.000   

Hildur Stefánsdóttir

681 Þórshöfn

Landslagsarkitektastofan Larka

300.000   

Hlédís Sveinsdóttir

365 Snæfellsbær

Eigið fé ehf.

500.000   

Hrafnhildur Hafdís Sverrisdóttir

620 Dalvík

Kofinn skólagæsla - Fyrir káta krakka-

300.000   

Kristín Scheving

701 Egilsstaðir

Hreindýraland, kvikmynda- og vídeólistahátíð

300.000   

Kristín Sigvaldadóttir

601 Akureyri

Búningaleiga og saumastofa

1.500.000   

Nanna Höskuldsdóttir

680 Þórshöfn

Þróun á framleiðslu og geymslu Kúffisk

790.000   

Ólína Þorvarðardóttir

400 Ísafirði

Sögusetur um Spánverjavígin

300.000   

Ólöf Þ. Hallgrímsdóttir

660 Mývatn

Sælkeraverslun í sveitinni

500.000   

Regína Ólína Þórarinsdóttir

531 Hvammstangi

Rjúpnarækt ehf

200.000   

Sara María Björnsdóttir

233 Hafnir

Útfararstofa fyrir konur sem á að heita Hvítar rósir

300.000   

Saumastofan Íris - Skagaströnd

545 Skagaströnd

Vöruþróun og markaðssetning Saumastofu

950.000   

Sesselja Traustadóttir

105 Reykjavík

Skipulag og stofnun umferðagarðs

300.000   

Sigrún Ingvarsdóttir

641 Húsavík

Útfararþjónusta Húsavíkur og nágrennis ehf.

550.000   

SJ bókhaldsþjónusta

680 Þórshöfn

Bókhaldsþjónusta

300.000   

Spákonuarfur

545 Skagaströnd

Spákonuhof á Skagaströnd

1.500.000   

Villimey slf

460 Tálknafirði

Vöruþróun fyrir erlendan markað

500.000   

Samtals

   

15.790.000   


Lýsing á viðskiptahugmyndunum:
Sjóræningjahúsið - menningartengd ferðaþjónusta
Viðskiptahugmynd Öldu Davíðsdóttur gengur út á að koma á fót sjóræningjasetri á Patreksfirði. Á setrinu yrði sett upp sýning sem gerir skil sjóránum við Íslandsstrendur. Sýningunni er ætlað að laða að ferðamenn og tengist minjagripasölu og kaffihúsi. Á sjóræningasetrinu verður lögð áhersla á afþreyingu fyrir börn.    

Heimavinnslan Jöklaís
Viðskiptahugmyndi Önnu Manly Thomsen er að framleiða heimagerðan ís til að styðja við rekstur á ferðaþjónustubýli í sveit.  

Útivista/skóþurrkunarofnar (Ísofnar)
Viðskipahugmynd Ástu Hafberg S. er að hefja framleiðslu, sölu og markaðssetningu á skóþurkunarofnum fyrir heimili sem hún hefur hannað nú þegar. Skóþurkunarofnarnir eru nettir og hentugir til að þurka blautan skófatnað.  

Álfheimar ferðaþjónusta Borgarfirði eystra
Viðskiptahugmynd Bergrúnar Jóhönnu Borgfjörð er að byggja frekar upp ferðaþjónustu sína á Borgarfirði eystra í þeim tilgangi að fá fleiri ferðamenn til að staldra við í plássinu og njóta dvalar í sjávarsamfélagi.    

Lífrænar rabarbara- og berjasultur
Viðskiptahugmynd Dorothee Lubecki er að setja upp lífrænt vottaða sultugerð. Sérstaða sultugerðarinnar byggir á nýtingu á lífrænt vottaðri rabbabaraframleiðslu og vöruþróun fyrir ferðamanna- sælkera- og  gjafavörumarkað.    

Stofa Höllu og Eyvindar
Viðskiptahugmynd Elínar Rósu Bjarnadóttur er að setja upp gestastofu Fjalla Eyvindar og Höllu á Blönduósi.  Í Eyvindarstofu sem verður í stíl Eyvindarhellis er fyrirhugað að segja sögu útilegumannsins og konu hans í þeim tilgangi að laða að ferðamenn og efla ferðaþjónustu á svæðinu.   

Hrafnaþing - sýning um íslenska hrafninn
Viðskiptahugmynd Sigríðar Lárusdóttur sem rekur ferðaþjónustuna Gauksmýri ehf er að koma upp sýningu um íslenska hrafninn fyrir ferðamenn. Tilgangurinn er að auka afþreyingu á staðnum og styrkja þann rekstur sem fyrir er. 

Berjamór 
Viðskiptahugmynd Guðríðar Ragnarsdóttur er að framleiða gæðaafurðir úr krækiberjum. Framleiddar verða þurkaðar, hráar og sykurlausar hollustuafurðir með langt geymsluþol sem verði í boði í heilsubúðum.    

Rjómaísgerð og kaffihús
Guðrún Egilsdóttir sem rekur rjómaísgerð í Eyjafirði hefur í hyggju að efla starfsemina með því að bæta aðgengi ferðamann að ísgerðinni og styrkja þannig rekstur fyrirtækisins.    

Töfrastiklingar
Viðskiptahugmynd Hallfríðar Finnborgar Sigurðardóttur í Bjarnarfirði á Ströndum er að rækta upp og selja aspir fyrir vestfirskan markað.    

Úr hreiðri í sæng
Viðskiptahugmynd Helgu Ingimarsdóttur á Höfnum á Skaga er að fullvinna dún í æðardúnsængur fyrir innlendan og erlendan markað.    

Álfasulta og Heljarskinn
Viðskiptahugmynd Hildar Pálsdóttur á Hólmavík er að framleiða lífrænt vottaða sultu úr íslenskum bláberjum til sölu í sérverslunum og á Ströndum.    

Landslagsarkitektastofan Larka
Viðskiptahugmynd Hildar Stefánsdóttur gengur út á  að koma á fót landslagsarkitektastofu á Þórshöfn. Starfsemin felst í ráðgjöf á sviði landslagshönnunar, skipulags- og  landslagsgreiningar.  

Eigið fé ehf.
Viðskiptahugmynd Hlédísar Sveinsdóttur er að koma upp fyrirtæki sem sér um sölu á lifandi fé og heldur úti heimasíðu sem miðlar upplýsingum milli bænda sem annast féð og eigenda fjárins. Með þessari starfsemi gefst borgarbúum sem vilja vera í tengslum við sveitalíf tækifæri til að eignast sína kind í sveitinni sem þeir geta heimsótt að vild.       

Kofinn skólagæsla - Fyrir káta krakka -
Viðskiptahugmynd Hrafnhildar Hafdísar Sverrisdóttur er að reka einkarekna skólagæslu á Dalvík. Þar verður lögð áhersla á skapandi starf með börnum, vellíðan og aðstoð við heimanám. Sérstök áhersla er lögð á að umhverfi og aðstæður séu þannig að börn með sérþarfir geti nýtt sér þjónustuna.  

Hreindýraland, kvikmynda- og vídeólistahátíð á Íslandi
Viðskiptahugmynd Kristínar Scheving er að halda árvisst kvikmynda- og vídeóhátíð á Egilstöðum.    

Búningaleiga og saumastofa
Viðskiptahugmynd Kristínar Sigvaldadóttur snýst um að setja upp saumastofu og búningaleigu á Akureyri. Markmiðið er að bjóða útleigu og/eða saumaskap á búningum til almennings, leikhópa og leikhúsa.    

Þróun á framleiðslu og geymslu Kúffisk fyrir veitingarstað
Viðskiptahugmynd Nönnu Höskuldsdóttur á Þórshöfn er að þróa og framleiða rétti úr kúffiski til að bjóða til sölu á eigin veitingastað. Á Þórshöfn er eina kúffisk verksmiðja landsins og er markmiðið að búa til sérfræðiþekkingu í meðferð og matreiðslu á kúffiski og skapa þannig sérstöðu fyrir svæðið og veitingastaðinn.    

Sögusetur um Spánverjavígin
Viðskiptahugmynd Ólínu Þorvarðardóttur á Ísafirði er að koma á fót sögusetri um Spánverjavígin. Tilgangurinn er að glæða ferðaþjónustu og ýta undir frekari menningarsögulegar rannsóknir á svæðinu.     

Sælkeraverslun í sveitinni 
Ólöf Þ. Hallgrímsdóttir hefur í hyggju að efla Ferðaþjónustu Vogafjóss í Mývatnssveit með því að þróa vörur til að selja í sérstakri sælkeraverslun í sveitinni. Fyrirtækið er aðili að „Beint frá býli".     

Rjúpnarækt ehf
Viðskiptahugmynd Regínu Ólínu Þórarinsdóttur gengur út á það að rækta rjúpur fyrir jólamarkaðinn. Verkefnið er á frumstigi og verður unnið að því í byrjun að rannsaka möguleika á rjúpnarækt.  

Útfararstofa fyrir konur - Hvítar rósir
Viðskiptahugmynd Söru Maríu Björnsdóttu í Höfnum er að stofna og reka útfararþjónustu þar sem einungis konur koma að þjónustunni.    

Vöruþróun og markaðssetning Saumastofu á Skagaströnd
Hjá Saumastofunni Íris á Skagaströnd er fyrirhugað að auka starfsemi fyrirtækisins með því að endurhanna framleiðslulínu og fara í markaðsátak. Saumastofan hefur haft öruggan markað innan heilbrigðisgeirans og telur ónýtt tækifæri þar sem ætlunin er að sækja.    

Skipulag og stofnun umferðagarðs
Viðskiptahugmynd Sesselju Traustadóttur er að hanna og móta umferðagarð þar sem ungir vegfarendur fá tækifæri til að læra góða umferðamenningu.    

Útfararþjónusta Húsavíkur og nágrennis ehf.
Viðskiptahugmynd Sigrúnar Ingvarsdóttur er að setja á stofn útfararstofu sem þjónustar Húsavík og nágrenni.    

Bókhaldsþjónusta
Viðskiptahugmynd Jóhönnu Helgadóttur og Sólveigar Ólafsdóttur er að stofna og reka SJ bókhaldsþjónusta á Þórshöfn til að skapa fleiri störf í byggðarlaginu, nýta sína þekkingu til sjálfstæðrar starfsemi  og auka á fjölbreytni atvinnutækifæra.    

Spákonuarfur
Viðskiptahugmynd Dagnýjar Marínar Sigmarsdóttur og samstarfskvenna er að stofna Spákonuhof á Skagaströnd. Áætlað er að þar verði boðið upp á ýmis konar spádóma fyrir ferðamenn ásamt rannsóknum á spádómum og sýningu um landnámskonuna Þórdísi spákonu.    

Vöruþróun fyrir erlendan markað
Villimey slf í eigu Aðalbjargar Þorsteinsdóttur framleiðir smyrsl og salva úr plöntum sem eru tíndar á Vestfjörðum. Framleiðslan fer fram á Tálknafirði og hefur hún alþjóðlega lífræna vottun. Hugmyndin er að glæða rekstur fyrirtækisins með því að koma framleiðslunni á erlendan markað.


Póstlisti

Hér er hægt að skrá sig á póstlista og fá sendar fréttir af verkefninu. Fylgstu með !!


Speki dagsins

Ekkert hamlar jafn mikið góðum samskiptum þínum við annað fólk, eins og ósætti við sjálfan þig. - Honore De Balzac

Atvinnumál kvenna á facebook
Atvinnumál kvenna á twitter

Stækka og minnka texta

Auðlestrarhamur Stækka letur Minnka letur

English information

Information in english

Danish information

Information pa dansk