Atvinnuþróunarfélög á landsbyggðinni
Atvinnuþróunarfélög eru starfrækt í öllum landshlutum nema á höfuðborgarsvæðinu og eru alls átta. Félögin eru rekin með framlögum frá ríki og sveitarfélögum og oftast bjóða þau þjónustu sína til frumkvöðla án endurgjalds. Atvinnuþróunarfélögin sinna margvíslegri ráðgjöf við einstaklinga og fyrirtæki og taka þátt í margs konar samstarfi við aðra aðila í stuðningskerfi atvinnulífsins. Sem dæmi um þjónustu þeirra má nefna rekstrarráðgjöf, handleiðslu og aðstoð við gerð umsókna og áætlana, útfærslu hugmynda og útvegun nánari sérfræðiaðstoðar.
Hér má sjá lista og heimasíður atvinnuþróunarfélaga á landsbyggðinni.
http://www.ssnv.is/
http://www.afe.is/
http://www.atthing.is/
http://www.austur.is/
http://www.sudur.is/
http://www.sss.is/
http://www.ssv.is/
http://www.atvest.is/








