Byggðastofnun
Þróunarsvið Byggðastofnunar tekur eftir atvikum þátt í innlendum og erlendum samstarfsverkefnum á sviði byggða- og atvinnuþróunar, meðal annars innan ramma Evrópusambandsins og Norðurlandaráðs. Þá hefur sviðið meðal annars umsjón með þátttöku Íslands í Norðurslóðaáætlun Evrópusambandsins (NPP) og Norrænu Atlantshafsnefndinni (NORA).
Byggðastofnun hefur sinnt konum og verkefnum þeirra sérstaklega í gegnum tíðina og voru á sínum tíma jafnréttisráðgjafar starfandi á landsbyggðinni á vegum stofnunarinnar. Í mars 2010 voru veittir fjórir styrkir til kvenna sem hafa hug á að markaðssetja hönnun erlendis, hver að fjárhæð tvær milljónir króna. Starfssvæði Byggðastofnunar er á landsbyggðinni og því geta konur á höfuðborgarsvæðinu hvorki sótt um styrki né lán hjá stofnuninni.
Í byggðaáætlun 2006-2009 er kveðið sérstaklega á um konur og atvinnurekstur sem hér segir: „Unnið verði að því að efla þátt kvenna í atvinnurekstri með ráðgjöf og námskeiðum. Hugað verði að leiðum til þess að gera stoðkerfi atvinnulífsins aðgengilegra fyrir konur."








