Hönnunarsjóður Áróru
Sjóðurinn er hluti af einkaframtakssjóðnum Áróru velgerðarsjóði. Hönnunarsjóðurinn er þriggja ára tilraunaverkefni á tímabilinu 2009-2011 og er ætlað að styðja við bakið á efnilegum hönnuðum, efla grasrótarstarf í hönnun og vera vettvangur hugmynda og skapandi hugsunar í greininni. Hann veitir hönnuðum fjárhagslega aðstoð til kynningar- og söluverkefna hérlendis og erlendis. Einnig getur sjóðurinn haft frumkvæði að sjálfstæðum verkefnum sem þjóna tilgangi hans, svo sem að standa að viðurkenningum eða sýningum og vera samstarfsvettvangur hönnuða og aðila úr atvinnu- og viðskiptalífinu.








